Advertisement
Við endurtökum leikinn - fósturfjölskylduhelgi í Vatnaskóg verður haldin að vori 2026, helgina 8.-10. maí.Skráning er opin og fer fram hér: https://forms.gle/MbwaF1D8F3XGvkT2A
Frábær helgi í fallegu umhverfi. Stútfull dagskrá af gleði og glaum fyrir þau yngri og fræðslu og félagsskap fyrir þau eldri. Við birtum nánari dagskrá þegar nær dregur en ýmislegt ber á góma í Vatnaskógi og í fortíðinni höfum við fengið leikhóp til okkar, blaðrarann, spilavini og fræðslu fyrir fullorðna fólkið ásamt allri hinni hefðbundnu dagskrá sem Vatnaskógur hefur upp á að bjóða.
Á staðnum er frábær gistiaðstaða. Hver fjölskylda fær sitt eigið herbergi en þarf að taka með sér lök, sængur/svefnpoka og kodda, góð útiföt fyrir öll veður og góða skapið. Annað er á staðnum.
Starfsfólk Vatnaskógs sér um að útbúa ljúffengan mat í öll mál en 5 máltíðar eru framreiddar á laugardegi. Mikilvægt er að láta vita ef einhver fæðuóþol/ofnæmi eru til staðar.
Verð:
Helgin kostar 17.800 á mann (frítt fyrir 6 ára og yngri)
Það er þó 60.000 króna greiðsluþak á helginni, óháð fjölda barna í fjölskyldu.
Innifalið er gistiaðstaða, fullt fæði allan tímann og skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna.
(Athugið, hámarkið nær yfir 2 fullorðna og börn óháð fjölda. Ef teknir eru með fleiri fullorðnir einstaklingar yfir 20 ára aldri, t.d. ömmur og afar greiða þau fullt gjald).
Advertisement
Event Venue
Vatnaskógur, Hvanneyri, Borgarfjardarsysla, Iceland, Reykjavík
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











