OPNUN | HÖNNUNARMARS 2026

Thu May 07 2026 at 08:00 pm to 10:00 pm UTC+00:00

Freyjugata 41, 101 Reykjavíkurborg, Ísland | Reykjavík

\u00c1smundarsalur
Publisher/HostÁsmundarsalur
OPNUN | H\u00d6NNUNARMARS 2026
Advertisement
Hönnunarmars í Ásmundarsal.
Verið hjartanlega velkomin á opnun Hönnunarmars 2026 í Ásmundarsal 7. mai kl. 20-22.
Þrjár einkasýningar, þrír hönnuðir og fullt hús af nýrri hönnun.
Veitingar í boði Ölgerðinnar, Íslenskrar Hollustu og Ásmundarsalar.
Hlökkum til að sjá ykkur öll og fagna íslenskri hönnun!

Heimur eftir Loga Pedro
Heimur er einkasýning íslensk angólska hönnuðarins Loga Pedro, sem er sett fram sem ein heildstæð innsetning, hönnuð og byggð frá grunni sem heimili. Í verkinu eru yfir tuttugu hlutir, allt frá húsgögnum til ljóss og hljóðs, mótaðir sem eitt rými, sem hafnar skandinavískri arleið sem og öðrum tilbúnum fyrirmyndum samtímans. Í staðinn endurspeglast hin persónulega og menningarlega reynsla höfundar, þar sem heimilið er ekki lengur samansafn hluta heldur meðvituð yfirlýsing um líf, og tilvist.
Daydreaming efir Sóley Jóhannsdóttur.
Daydreaming er nýjasta fatalína Sóleyjar Jóhannsdóttur. Undanfarin ár hefur Sóley starfað hjá alþjóðlegum tískuhúsum á borð við Louis Vuitton, Paul Smith og Lemaire. Nú stígur hún fram með eigið merki, By Soley og sýnir línuna Daydreaming. Línan er sjálfstætt framhald fyrstu línu hennar Sleepwalker, sem var frumsýnd á HönnunarMars 2025. Með línunni heldur hún áfram að þróa sitt sjónræna tungumál þar sem mjúkur, draumkenndur veruleiki mætir sterkum og þungum formum.

1160 gráður eftir Auði Gná
Á sýningunni 1160 gráður vinnur Auður Gná eingöngu með eitt grunnefni, gler, og nálgast það með ólíkum aðferðum. Hún tengir saman staðlaða framleiðslu og einstakt handverk og bræðir saman hið hefðbundna og hið óvænta.
Sýningin samanstendur af speglum sem hafa umbreyst og tekið á sig þrívíða mynd. Athygli er beint að efninu sjálfu og eiginleikum þess, og speglarnir glata því hlutverki sem þeim er yfirleitt ætlað. Úr verður spegill sem opnar rými og skapar fjarlægð frá umhverfinu. Handgert glerið brýtur upp spegilmyndina, mýkir hana og afmáir að hluta.

Um listamennina
Logi Pedro Stefánsson er íslensk angólskur hönnuður búsettur í Reykjavík. Hann er fæddur í Portúgal en alinn upp á Íslandi og lauk BA gráðu í vöruhönnun frá Listaháskóli Íslands.Hann starfar sem iðnhönnuður hjá Össur Design Center og er jafnframt gestakennari við vöruhönnunardeild Listaháskóla Íslands. Undir merkinu Lopedro vinnur hann að hönnun húsgagna, hluta og skóbúnaðar, meðal annars í samstarfi við RANRA, Fila Fusion, 66°North og Plastplan.
Heimur er fyrsta einkasýning hans. Samhliða hönnun hefur Logi einnig byggt upp feril sem tónlistarmaður á síðustu tveimur áratugum.
Sóley Jóhannsdóttir lauk meistaragráðu í fatahönnun frá Institut Français de la Mode í París árið 2020, að loknu BA námi frá University of Brighton árið 2017. Sumarið 2024 bætti hún við sig sérhæfðu námi í klæðskerasaumi hjá Savile Row Academy með áherslu á sníðagerð og svokallaða made to measure aðferð. Sóley hefur starfað sem hönnuður hjá virtum tískuhúsum á borð við Louis Vuitton, Lemaire og Paul Smith. Einnig hefur hún unnið að einstökum samstarfsverkefnum, sem dæmi Louis Vuitton og La Fabrique Nomade, sem var sýnt í Louvre árið 2025.
Auður Gná Ingvarsdóttir er menntaður innanhússarkitekt frá Barcelona og með B.A.-gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur komið að fjölbreyttum hönnunarverkefnum í gegnum tíðina en hefur á undanförnum árum lagt megináherslu á vöruhönnun fyrir eigið merki, Insula Reykjavík.
Advertisement

Event Venue

Freyjugata 41, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Freyjugata 41, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Fr\u00e1b\u00e6rir fimmtudagar - s\u00e1 fyrsti
Thu, 07 May at 06:00 pm Frábærir fimmtudagar - sá fyrsti

Olís (Norðlingaholt 7, Reykjavík, Iceland)

Su\u00f0 \u00e1 H\u00f6nnunarMars
Thu, 07 May at 06:00 pm Suð á HönnunarMars

Vesturgata 10A, 101 Reykjavíkurborg, Ísland

\u00d6ldur og hvalur \/\/ Opnun
Thu, 07 May at 06:00 pm Öldur og hvalur // Opnun

Laugavegur 82, 101 Reykjavíkurborg, Ísland

100 manns I H\u00f6nnunarMars
Thu, 07 May at 07:00 pm 100 manns I HönnunarMars

Hverfisgata 4, 101 Reykjavíkurborg, Ísland

Af hverju hl\u00e6jum vi\u00f0? - Opinn fyrirlestur!
Thu, 07 May at 07:30 pm Af hverju hlæjum við? - Opinn fyrirlestur!

Lífspekifélagið

\u00d6sp er \u00e6\u00f0isleg - B\u00f6ku\u00f0: Samtal \u00ed Mengi
Fri, 08 May at 11:00 am Ösp er æðisleg - Bökuð: Samtal í Mengi

Mengi

F\u00e1\u00f0u \u00fe\u00e9r kr\u00edu
Fri, 08 May at 12:00 pm Fáðu þér kríu

Hotel Holt, Reykjavik

Salsa & bachata danshelgi \u00e1 H\u00f3tel Varmalandi
Fri, 08 May at 04:00 pm Salsa & bachata danshelgi á Hótel Varmalandi

Hótel Varmaland

Vatnask\u00f3gur a\u00f0 vori 2026
Fri, 08 May at 04:00 pm Vatnaskógur að vori 2026

Vatnaskógur

Silkiprent n\u00e1mskei\u00f0 me\u00f0 S\u00f6ru Mar\u00edu
Fri, 08 May at 05:00 pm Silkiprent námskeið með Söru Maríu

Rafstöðvarvegur 1a

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events