Advertisement
Sønderborg Gospel Choir heldur tónleika í Skálholtskirkju Laugardaginn 30 .Maí næstkomandi. Sønderborg Gospel Choir er blandaður kór u.þ,b 35 manns, sem syngja gospel tónlist undir stjórn Johanna Løhde Nielsen í Sønderborg í Danmörku. Í augnarblikinu eru 3 Íslendingar sem syngja með kórnum. Á tónleikum er markmið kórsins að hrífa áhorfendur með og veita þeim tónlistarupplifun með gleði nærveru og mikilli orku
Johanna Løhde Nielsen hefur frá árinu 2017 verið stjórnandi kórsins. Hún er menntuð rytmísk söngkona og kórstjóri frá Konunglega tónlistara kademíunni á Jótlandi. Píansisti er Rasmus Løhde Nielsen.
Á tónleikunum mun kóinn flytja röð þekktra verka úr gospel heiminum. Sem dæmi má nefna: Come into this House. Höf: Gary Oliver, Imagine me. Höf: Kirk Franklin
og Total Praise. Höf: T&M: Richard Smallwood / Arr:S.Bay.
Það er mikil tilhlökkun hjá kórmeðlimum, kórstjóra og píanista til að syngja fyrir íslenska áhorfendur og vonumst við til að sjá sem flesta.
Það er frír aðgangur að tónleikunum svo lengi sem pláss leyfir.
Advertisement
Event Venue
Skálholtskirkja, Selfoss, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.









