Miðfellshlaupið 2026 - 30.maí

Sat May 30 2026 at 11:00 am to 12:30 pm UTC+00:00

Flúðir, 845 Hrunamannahreppur, Ísland | Selfoss

Mi\u00f0fellshlaupi\u00f0 2026 - 30.ma\u00ed
Advertisement
Miðfellshlaupið 2026 - 30. maí kl. 11:00
Miðfellshlaupið 2026 er til styrktar Vettvangsliðum Bf. Eyvindar en hópurinn þjónar uppsveitum Árnessýslu. Hópurinn er fyrsta útkall þegar þörf er á sjúkrabíl vegna bráðatilfella (slys, hjartaáfall, hjartastopp, bráðaofnæmi o.fl.). Vegna nálægðar í uppsveitunum er Vettvangshjálparhópurinn kominn á vettvang um 10-20 mín. áður en sjúkrabíll frá Selfossi kemur.
Boðið verður upp á þessar vegalengdir:
- 1.2 km (99% malbik)
- 3 km. (ganga/skokk)
- 5 km. (ganga/skokk/hlaup, byrjar í Miðfellshverfinu, minibus)
- 10 km. (skokk/hlaup, byrjar við íþróttahúsið)
Hlaupið byrjar kl. 11. Hlaupaleiðin liggur milli íþróttahúss á Flúðum og Miðfellshverfisins og fylgir reiðvegi og malarvegi meðfram Miðfelli að vestanverðu. Hér má sjá myndband af leiðinni: https://www.relive.cc/view/v1vjD3V5ZJ6
Það verða ekki rásnúmer eða tímataka en það verður markklukka þar sem þátttakendur geta séð tíma sinn þegar í mark er komið.
Veitingar verða í boði og dregið verður úr nöfnum þátttakenda sem fá glaðning.
Þátttökugjald í Miðfellshlaupinu er ókeypis fyrir 16 ára og yngri. Gjaldið fyrir aðra er 3.000 kr. fyrir allar vegalengdir og ef þú vilt um leið styrkja Vettvangsliðahópinn enn frekar þá getur þú valið milli 4 valmöguleika. Skráningin er opin allt fram að hlaupadegi og einnig um morguninn rétt fyrir hlaup. Greiðsla felst í millifærslu inn á reikning Miðfellshlaupsins við skráningu sem er 0325-26-000737 kt. 640169-2309 (Hrunamannahreppur).
Hér er hlekkur á skráningu: https://forms.gle/VqxU3mx8yLdSmvgr8
Starf vettvangshjálparhópsins:
Björgunarfélagið Eyvindur hefur frá árinu 2011 verið með starfandi vettvangsliðahóp sem sinnir neyðarviðbragði í uppsveitum Árnessýslu. Samningur er á milli Bf.Eyvindar og HSU og felst í að HSU geti óskað eftir aðstoð hópsins þegar þörf er á aðstoð og bregðast þarf við í alvarlegum veikindum eða slysum í uppsveitum Árnessýslu. Árið 2011, þegar vettvangshjálparhópurinn var stofnaður voru 6 menntaðir einstaklingar í vettvangshjálp í óbyggðum (WFR). Með árunum hefur svo fjölgað í hópnum og eru auk WFR menntaðra, hjúkrunarfræðingur, sjúkraliðar og sjúkraflutningafólk í hópnum. Í dag samanstendur hann af alls 15 manns. Nauðsynlegt er að hafa góða endurmenntun fyrir hópinn og er vettvangshjálparhópurinn duglegur að ná sér í meiri þekkingu með því að sækja námskeið og fyrirlestra og einnig koma annað slagið sjúkraflutningamenn frá HSU og fara yfir ýmislegt sem er talið er gott að skerpa á.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest þann 30. maí, hreyfum okkur saman og eigum góða stund í góðum félagsskap og styrkjum gott málefni í leiðinni. Allt skiptir þetta máli :-)
Kærar kveðjur,
Arnfríður og Kolbrún
P.s. Endilega sendið á okkur línu eða sláið á þráðinn ef eitthvað er óljóst:
[email protected] - sími: 8960430
[email protected] - sími: 6995178
Advertisement

Event Venue

Flúðir, 845 Hrunamannahreppur, Ísland, Selfoss, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Discover more events by tags:

Digital-marketing in Selfoss

Ask AI if this event suits you:

More Events in Selfoss

Engla Reiki 1&2 - Heilunarn\u00e1mskei\u00f0
Fri, 29 May at 06:00 pm Engla Reiki 1&2 - Heilunarnámskeið

Austurmörk 7, 810 Hveragerðisbær, Ísland

VOX RANG\u00c1R\u00deING - AST
Fri, 29 May at 08:00 pm VOX RANGÁRÞING - AST

Hvoll

MAMMA MIA PARTY \ud83e\udd73 29. ma\u00ed
Fri, 29 May at 09:00 pm MAMMA MIA PARTY 🥳 29. maí

Miðbær Selfoss, 800 Selfoss, Iceland

N\u00fdli\u00f0afer\u00f0 \u00ed Hv\u00edt\u00e1
Sat, 30 May at 12:30 pm Nýliðaferð í Hvítá

Drumbó

KK | 70 \u00e1ra - Fri\u00f0heimar
Sat, 30 May at 08:00 pm KK | 70 ára - Friðheimar

Vínstofa Friðheima

T\u00f3leikar S\u00f8nderborg Gospel Choir \u00ed Sk\u00e1lholtskirkju
Sat, 30 May at 08:00 pm Tóleikar Sønderborg Gospel Choir í Skálholtskirkju

Skálholtskirkja

HENGIL ULTRA 2026
Fri, 05 Jun at 06:00 pm HENGIL ULTRA 2026

Hveragerði

M\u00fas\u00edk Bing\u00f3 Fanneyjar \u00e1 Selfossi
Sat, 06 Jun at 09:00 pm Músík Bingó Fanneyjar á Selfossi

Miðbær Selfoss, 800 Selfoss, Iceland

\u00c6ttarm\u00f3t Ni\u00f0ja Bjarneyjar og J\u00f3hanns 7. j\u00fan\u00ed 2026
Sun, 07 Jun at 01:00 pm Ættarmót Niðja Bjarneyjar og Jóhanns 7. júní 2026

Hótel Örk

Selfoss is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Selfoss Events