Advertisement
Lúðrasveit Þorlákshafnar býður í sannkallaða fjölskylduveislu 10. maí klukkan 16:00 þegar sveitin heldur glæsilega teiknimyndatónleika í sal Fjölbrautaskóla Suðurland á Selfossi. Á efnisskránni verða lög úr vinsælum teiknimyndum sem flestir þekkja og elska – tónlist sem fær bæði börn og fullorðna til að brosa, syngja með og rifja upp góðar minningar. Tónleikarnir henta þó ekki allra yngsta fólkinu en þeir eru með hléi um 2 klukkustundir.
Til að gera upplifunina enn skemmtilegri mun Leikhópurinn Lotta bregða á leik á milli atriða með fjörugum og fyndnum kynningum eins og þeim einum er lagið.
Nemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga munu einnig spila með í nokkrum lögum en með þessum tónleikum vonast Lúðrasveitin til þess að vekja áhuga ungra einstaklinga á blásturshljóðfærum og námi á þeim hljóðfærum.
Miðasala á:
https://tix.is/event/21131/teiknimyndatonleikar-ludrasveitar-thorlakshafnar
Miðaverð: 2.000 kr.
Advertisement
Event Venue
Fjölbrautaskóli Suðurlands, Tryggvagata 25,Selfoss, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.







