Getur list læknað með því að tengja saman huga og líkama? / Can art heal, 2 day course.

Wed, 20 May, 2026 at 01:00 pm to Thu, 21 May, 2026 at 04:00 pm UTC+00:00

Austurmörk 21, 810 Hveragerði, Iceland | Selfoss

Listasafn \u00c1rnesinga - L\u00c1 Art Museum
Publisher/HostListasafn Árnesinga - LÁ Art Museum
Getur list l\u00e6kna\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tengja saman huga og l\u00edkama? \/ Can art heal, 2 day course.
Advertisement
Getur list læknað með því að tengja saman huga og líkama? Og leitt til aukinnar þátttöku, vellíðunar og inngildingar?
20. - 21. maí 2026
Dagur 1
20. maí
Kl. 13-16
Fyrirlestur og umræðulotur / á verkstæðinu á Fríkirkjuvegi – Listasafn Íslands
Lengd: 3 klst.
Þessi hluti er byggður upp sem fyrirlestur í bland við umræðuhópa.
Kynning á tengslum lista, huga og líkama.
Umræða um hvernig skapandi ferli og safnaheimsóknir geta stuðlað að vellíðan, sjálfstjáningu og endurtengingu huga og líkama.
Aðferðir sem söfn og menningarstofnanir nýta til að ná til breiðari hópa, bæði í stafrænum og líkamlegum rýmum.
Sérstök umfjöllun um áhrif lista og safnaheimsókna á einstaklinga á einhverfurófi, með áherslu á hvernig skapandi verkefni geta stutt við einbeitingu, félagslega þátttöku og tilfinningastjórnun.
Umræður og spurningar sem byggja á reynslu þátttakenda, samfélagslegum áhrifum og því hvernig fagfólk getur nýtt þessar aðferðir í eigin starfi.
Dagur 2
21. maí
Kl. 10:00 - 16:00
Verkleg vinnustofa á Listasafni Árnesinga í Hveragerði
Lengd: 5 klst. (2 × 2 klst.+ hádegishlé)
Listasmiðjur þar sem þátttakendur vinna með fjölbreytt efni á borð við leir, stop-motion myndband og grafískar aðferðir. Æfingar í þrívídd og líkamsvitund með áherslu á sköpun sem leið til tengsla, skynjunar og vellíðunar. Kynningar og umræður um hvernig listaverkefni og safnaheimsóknir geta haft jákvæð áhrif á einstaklinga með einhverfu, m.a. með aukinni einbeitingu, sjálfstjáningu og þátttöku í hópastarfi.
Umræða um hvernig hægt er að aðlaga vinnustofur að ólíkum markhópum: val á efni, tímalengd, tæknileg færni og markmið.
Markmið
Að þátttakendur kynnist aðferðum sem efla tengsl huga og líkama í gegnum listsköpun.
Að auka skilning á áhrifum skapandi ferla og safnaheimsókna á vellíðan, sjálfstjáningu og félagslega þátttöku, sérstaklega hjá fólki með einhverfu eða fötlun.
Að veita fagfólki verkfæri til að þróa vinnustofur og fræðsluverkefni fyrir fjölbreytta hópa.
Verkefnið styrkir menningarlega þátttöku fólks sem stendur utan hefðbundins listalífs, eflir samkennd og tengsl milli hópa og undirstrikar mikilvægi listar í menntun, vellíðan og félagslegri inngildingu.
Leiðbeinendur námskeiðisins eru Thomasine Giesecke og Pascale Chau-huu.
Bio
Thomasine Giesecke hefur 20 ára reynslu sem safnkennari við Musée d’Orsay og Musée de l’Orangerie. Hún hefur leiðbeint börnum og fjölskyldum fjölbreyttar listasmiðjur á söfnum í fjölda ára. Thomasine hefur einnig skipulagt leiðsagnir um sýningar í ólíkum listgreinum. Hún hefur þróað fjölmargar vinnustofur sem fela í sér fjölbreytta tæknilega færni: stafræna miðlun, teikningu, ljósmyndun og mótun með efnum á borð við leir og málningu, á ýmiss konar efni eins og striga, pappír, gleri, málmi og fleiru.
Thomasine hefur brennandi áhuga á að kanna nýjar kennsluaðferðir og í rannsóknarvinnu sinni hefur hún orðið vör við mátt efniviðarins fyrir börn, unglinga og fullorðna.
„Ég met það mikils að sjá líkamleg samskipti fólks við ólík ­efni. Þessi verkfæri losa um tilfinningar og efla skynjun og næmi, bæði líkamlegt og vitsmunalegt,“ segir Thomasine.
„Ánægja mín felst í því að hvetja þau til að kanna og skynja efnin á meðan sköpunargleðin er ræktuð.“
Vinnustofur Thomasine leggja áherslu á snertingu og líkamsbundna sköpun, jafnvel fyrir þau sem upplifa sig oft jaðarsett í menningarrýmum.
Að lokum talar hún fyrir því að list og söfn séu inngildandi, skynræn rými — staðir þar sem fólk getur eflt tenginguna við sjálft sig og öðrum á ný í gegnum einfaldan og læknandi kraft sköpunarinnar.
Auk þess hefur hún leitt vinnustofur á sjúkrahúsum fyrir börn með krabbamein og alvarlega sjúkdóma (í samstarfi við Orsay, Necker og IGR), fyrir einhverf börn og ungt fólk (CMP og Foyer Paul Vernon) og fyrir fanga (Louvre).
Thomasine er einnig með hönnunargráðu (DNSEP) frá École Supérieure des Arts Décoratifs de Strasbourg og hefur kennt jóga fyrir ungt fólk og fullorðna frá árinu 2009 (menntuð frá BKS Yoga Institute í Pune á Indlandi).
www.thomasinegiesecke.com
Pascale Chau-huu fæddist við strendur Miðjarðarhafsins, í Marseille, af víetnömskum föður og franskri móður með ítalskar rætur.
Á heimilinu runnu saman menningarheimar; sjónarhorn mættust eða tókust á.
Mjög snemma varð Pascale ljóst að tungumál er opið túlkun.
Á hinn bóginn gat skynjun á andrúmslofti eða líkamstjáningu reynst áreiðanlegri og veitt dýpri skilning.
Þetta vakti mikinn áhuga á líffræði og óyrtri tjáningu, og ástríðu fyrir atferli dýra, meðal annars í gegnum verk atferlisfræðingsins Konrad Lorenz og skrif Charles Darwin.
Síðar, sem nemandi við Marseille School of Fine Arts (í málun), breyttu tveir atburðir sambandi Pascale við rými og umhverfi hennar á róttækan hátt: að búa á bát í vík í Marseille og að uppgötva köfun.
Síðar þróaðist líf hennar í París, og fjölbreytt reynsla auðgaði vinnu við verka hennar — allt frá myndasögugerð og auglýsingahönnun til vefhönnunar og tæknibrellna í teiknimyndum.
Undanfarin ár hafa einkennst af því að leiða listavinnustofur þar sem hún deilir reynslu sinni. Hún heldur áfram að skapa teiknimyndir og málverk, í vinnustofu sinni í París eða í listamannadvölum.
https://pascale-chauhuu.com/
Námskeiðisgjald er 20.000 kr
Skráningargjald 10.000 kr (sem er dregið af heildarupphæð)
Takmarkað pláss
Skráning á [email protected]
Námskeiðið er styrkt af Safnaráði og er samstarf Listasafns Árnesinga og Listasafns Íslands.
-------
Can art heal by connecting the mind and the body? Can it lead to greater participation, well-being, and inclusion?
Seminar & Workshop for museum educators.
Day 1- May 20th - Lecture and discussion session / Verkstæðið Fríkirkjuvegi - National Gallery of Iceland.
From 12 - 3 pm
Duration: 3 hours
This part is structured as a lecture combined with discussion groups.
An introduction to the relationship between art, the mind, and the body. Discussion on how creative processes and museum visits can promote well-being, self-expression, and a reconnection of mind and body.
Methodologies used by museums and cultural institutions to reach broader audiences in both digital and physical spaces.
A special discussion on the impact of art and museum visits on individuals on the autism spectrum, with emphasis on how creative projects can support attention regulation, social participation, and emotional regulation.
Discussions and questions focusing on participants’ experiences, societal impact, and how professionals can integrate these methods into their own work.
Day 2 – May 21st - Practical workshop /LÁ Art Museum Museum, Hveragerði.
From 10 am - 3 pm
Duration: 5 hours (2 x 2 hours + hour for lunch)
Art workshops where participants work with materials such as clay, stop-motion video, and graphic techniques.
Exercises in three-dimensional work and body awareness, with an emphasis on creation as a stimulus for connection, sensory perception, and well-being.
Presentations and discussions on how art projects and museum visits have positive effects on individuals with autism, for example, through increased concentration, self-expression, and group participation. Discussion on how one can adapt a workshop
to a specific audience : which material, duration, technical skills and goals.
Objectives
For participants to become familiar with methods that connect mind and body through artistic creation.
To increase understanding of the impact of creative processes and museum visits on well-being, self-expression, and social participation, especially for individuals with autism or with disabilities.
To provide professionals with tools to design workshops and educational programs for diverse groups.
The workshop strengthens cultural participation among those who are outside traditional art life, promotes empathy and connections between groups, and reinforces the role of art in education, well-being, and social inclusion.
Instructors are Thomasine Giesecke and Pascale Chau-huu.
Bio
Thomasine Giesecke has 20 years of experience as a museum educator, at Musee Orsay and Orangerie. She teaches art to children and families who participate in the workshops. Thomasine has also done the coordination and organisation of tours of exhibitions in different art genres. She has developed new workshops that involve technical skills : digital, drawing, photography, sculpting using such materials as clay, paint, on various surfaces canvas, paper, glass, metal and more.
Thomasine loves exploring new techniques of teaching and in the process of her research she has observed the power of material on children, teenagers and adults.
“I appreciate seeing physical interactions with various art materials. These tools and support systems free people's emotions, and develop their senses and perceptions, both physical and intellectual” Thomasine says.
“My pleasure is to encourage them to explore and feel these substances while cultivating creativity.”
Thomasine´s workshops focus on tactile, embodied creation, even for those who typically feel excluded from cultural spaces.
Ultimately, she advocates for making art and museums inclusive, sensory, and human-centered—spaces where people can reconnect with themselves and others through the simple, healing act of creation.
Her additional creative occupations are: workshops at hospital for children suffering of cancer and severe diseases (Orsay with Necker and IGR) for autistic children and young adults ( CMP and Foyer Paul Vernon) and for inmates (Louvre).
Thomasine´s further qualifications includes a degree (DNSEP) in design from the Ecole Supérieure des Arts Décoratifs de Strasbourg and she has been teaching yoga to young people and adults since 2009 (degree from BKS Yoga Institute in Pune, India).
www.thomasinegiesecke.com
Pascale Chau-huu was born on the shores of the Mediterranean, in Marseille, to a Vietnamese father and a French mother with Italian roots.
At home, cultures blended, viewpoints intersected, or clashed.
Very quickly, it became clear for Pascale that language was opened to interpretation.
On the other hand, reading an atmosphere or a body could be more reliable; could provide deeper understanding.
This led to a great interest in biology and non-verbal communication, a passion for animal behavior, through the works of ethologist Konrad Lorenz and the writings of Charles Darwin.
Then, as a student at the Marseille School of Fine Arts (studying painting), two events radically changed Pascale’s relationship to space and the environment: living on a boat in a Marseille cove and discovering scuba diving.
Later, her life in Paris unfolds, and her work with images enriched, by a multitude of experiences, from comic book layout to advertising design, from website development to cartoon special effects.
Recent years have been marked by leading art workshops to share her experience. She keeps on creating animated movies and paintings, in her Parisian workshop or during artist residencies.
https://pascale-chauhuu.com/

Course fee: 20,000 ISK
Registration fee: 10,000 ISK (which is deducted from the total amount)
The course is supported by the Museum Council of Iceland and is made in collaboration with the National Gallery of Iceland.
Limited availability
Registration: [email protected]
Advertisement

Event Venue

Austurmörk 21, 810 Hveragerði, Iceland, Austurmörk 21, 810 Hveragerðisbær, Ísland, Selfoss, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Selfoss

Sim Ying heldur t\u00f3nleika \u00ed Listasafni \u00c1rnesinga. \/ Free concert in L\u00c1 Art Museum.
Wed, 20 May at 04:00 pm Sim Ying heldur tónleika í Listasafni Árnesinga. / Free concert in LÁ Art Museum.

Austurmörk 21, 810 Hveragerði, Iceland

Engla Reiki 1&2 - Heilunarn\u00e1mskei\u00f0
Fri, 29 May at 06:00 pm Engla Reiki 1&2 - Heilunarnámskeið

Austurmörk 7, 810 Hveragerðisbær, Ísland

MAMMA MIA PARTY \ud83e\udd73 29. ma\u00ed
Fri, 29 May at 09:00 pm MAMMA MIA PARTY 🥳 29. maí

Miðbær Selfoss, 800 Selfoss, Iceland

HENGIL ULTRA 2026
Fri, 05 Jun at 06:00 pm HENGIL ULTRA 2026

Hveragerði

M\u00fas\u00edk Bing\u00f3 Fanneyjar \u00e1 Selfossi
Sat, 06 Jun at 09:00 pm Músík Bingó Fanneyjar á Selfossi

Miðbær Selfoss, 800 Selfoss, Iceland

\u00c6ttarm\u00f3t Ni\u00f0ja Bjarneyjar og J\u00f3hanns 7. j\u00fan\u00ed 2026
Sun, 07 Jun at 01:00 pm Ættarmót Niðja Bjarneyjar og Jóhanns 7. júní 2026

Hótel Örk

Selfoss is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Selfoss Events