Advertisement
*English below*Við bjóðum ykkur velkomin á opnun einkasýningar Dýrfinnu Benitu Basalan, Ævarandi ástand / Perpetual Progress, laugardaginn 2. maí á milli 17 - 19 í Þulu Hafnartorgi, Bryggjugötu 6.
Vonum að sjá ykkur sem flest.
⸻
Ævarandi ástand
Þessi sýning sprettur úr mótsögn: að búa á einum öruggasta stað í heimi en upplifa samt stöðugan kvíða. Að vera umlukin kyrrð og stöðugleika, en bera innra með sér óróleika sem á sér rætur víða annars staðar.
Málverkin mótast af tilvistarlegum vangaveltum og fyrirbærinu „doomscrolling“ - þessu endalausa flæði neikvæðra upplýsinga sem við neytum daglega. Heimurinn berst inn á skjáinn með sífelldum tilkynningum um átök, hamfarir og pólitíska spennu. Við verðum ofurmeðvituð um alþjóðastjórnmál, um hnignun einkalífs og brothættan áreiðanleika sannleikans.
Samt höldum við áfram. Í nafni upplýsinga, í leit að tengslum, eða jafnvel sem flótta. Við vitum að þetta ástand nærist á ótta, en það veitir okkur jafnframt tilfinningu fyrir nálægð og þátttöku.
Í þessari togstreitu - milli öryggis og ógnar, fjarlægðar og nálægðar, stjórnleysis og daglegs lífs - verður til ævarandi ástand.
Að vera manneskja er snúið. Lífið heldur áfram þar til það gerir það ekki. Í þeirri vitneskju felst bæði þungi og frelsi — og kannski er verkið tilraun til að staldra við, horfast í augu við ástandið og reyna, eftir bestu getu, að lifa.
Texti eftir Dýrfinnu Benitu Basalan
⸻
Dýrfinna Benita Basalan (f. 1992) er fædd í Reykjavík. Hún útskrifaðist frá Gerrit Rietveld Academie með BA-gráðu í myndlist og hönnun árið 2018. Síðan þá hefur Dýrfinna verið virk á vettvangi myndlistar og er þekkt fyrir verk sín í blönduðum miðlum, teikningar og skúlptúra. Verk hennar fjalla um samfélagið og margbreytileika þess, pólitík sjálfsmyndar og innra barnið. Nýlegar sýningar eru Stara, Gerðarsafn (2025), Í gegnum súrt og sætt ásamt Melanie Ubaldo, Nýlistasafnið (2025), Algjörar skvísur, Hafnarborg (2025), Apple of My Eye, Á Milli (2024) og Langavitleysan, Listasafn Reykjavíkur (2023).
Samhliða eigin listsköpun er hún hluti af listahópnum Lucky 3, sem hún stofnaði árið 2019 ásamt Melanie Ubaldo og Dream, öll eru þau íslenskir listamenn með filippínskar rætur. Saman hlutu þau hvatningarverðlaun Myndlistarmiðstöðvar árið 2022 fyrir verkið PUTI. Gjörningur þeirra, HJÚKRUN, ásamt Ragnari Kjartanssyni (2024) hlaut lof gagnrýnenda.
⸻⸻
We warmly welcome you to the opening of Dýrfinna Benita Basalan's solo exhibition, Perpetual Progress / Ævarandi ástand, on Saturday, May 2nd, between 5 - 7 pm at Þula Hafnartorg, Bryggjugata 6.
We hope to see you all there!
⸻
Perpetual Progress
This exhibition emerges from a contradiction: living in one of the safest places in the world while still experiencing a persistent sense of anxiety. Being surrounded by calm and stability, yet carrying an inner restlessness rooted elsewhere.
The paintings are shaped by existential reflection and the phenomenon of “doomscrolling” - the endless stream of negative information we consume daily. The world enters through the screen in a constant flow of notifications about conflict, disaster, and political tension. We become hyper-aware of global politics, of the erosion of privacy, and of the fragility of truth itself.
And yet, we continue. In the name of staying informed, in search of connection, or perhaps as a form of escape. We recognize that this condition feeds on fear while simultaneously offering a sense of proximity and participation.
Within this tension - between safety and threat, distance and closeness, powerlessness and everyday life - a state of perpetual progress takes shape.
To be human is complicated. Life goes on until it doesn’t. In that awareness lies both weight and freedom - and perhaps the work is an attempt to pause, to confront this condition, and to try, as best as possible, to live.
Text by Dýrfinna Benita Basalan
⸻
Dýrfinna Benita Basalan (b. 1992) was born in Reykjavík, Iceland. She graduated from The Gerrit Rietveld Academy with her Bachelor degree in Fine Arts and Design 2018. Dýrfinna has since had an active solo career and is known for her mixed media drawings and sculptures. Her work touches on subjects of society and it’s complexity, the politics of identity and the inner child. Recent exhibitions include Stara, Gerðarsafn (2025), Through Thick and Thin (with Melanie Ubaldo), The Living Art Museum (2025), Total babes, Hafnarborg (2025), Apple of My Eye, Á Milli (2024), and Chronic Pain, Reykjavík Art Museum (2023).
Alongside her solo practice she is part of the artist collective Lucky 3 which she co-founded 2019 with Melanie Ubaldo and Dream, all Icelandic artists with Filipino roots. Together they were awarded the Motivational Art Prize by the Icelandic Art Centre in 2022 for their performance art piece PUTI. Their performance art piece HJÚKRUN featuring Ragnar Kjartansson in 2024 received critical acclaim.
Advertisement
Event Venue
Bryggjugata 6, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Bryggjugata 6, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











