Advertisement
STEINVÆNGR 16.08.2025 - 27.09.2025Matthías Rúnar Sigurðsson
Hjördís Gréta Guðmundsdóttir
Steinvængr er samsýning þeirra Matthíasar Rúnars Sigurðssonar og Hjördísar Grétu Guðmundsdóttur þar sem málverk og höggmyndir spila saman. Á sýningunni má til dæmis sjá málverk af fiðrildum, blávængjum - sem lýsast upp af ímynduðu vasaljósi manneskjunnar og einnig hrekkjalóma í formi steinmynda sem vekja upp hugleiðingar um forneskjulegar verur. Innan um kerfil, gras og annan gróður er að finna lítil augnablik þar sem fiðrildi flýgur framhjá og steinrunninn hrekkjalómur hefur valið sér stað til að dvelja.
Með vasaljósinu reynir manneskjan ósjálfkrafa að ná tengingu við næturbirtuna sem einu sinni var miklu skærari.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland