Advertisement
Menntavísindasvið Háskóla Íslands í samstarfi við skóla - og frístundasvið Reykjavíkurborgar býður þér á Stefnumót við gervigreind fimmtudaginn 21. nóvember kl. 14:30-16:30. Aðgangur er ókeypis en óskað eftir skráningu: https://forms.office.com/e/EE2FSHVjsB Á stefnumótinu kynnumst við því hvernig gervigreindin getur nýst í menntun og skoðum hagnýtingu hennar, tækifæri og takmörk. Stefnumótið er ætlað öllum sem koma að menntun á öllum skólastigum. Viltu kynnast því hvernig nemendur, kennarar og annað skólafólk nýtir sér gervigreindina? Taktu þátt í umræðu um hvernig gervigreindin breytir námi og hvernig hún er nú þegar farin að nýtast í menntun.
Stefnt er á gleðistund í Tónabíó, Skipholti 33 eftir að dagskrá lýkur, þar sem hægt er að fá veigar á góðu verði.
Stefnumótið skiptist í tvennt:
14:30 - 15:30 Menntabúðir (Klettur, Menntavísindasvið HÍ)
Menntabúðir er samkoma þar sem fólk kemur saman til að miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Samtal er í aðalhlutverki í menntabúðum. Öll geta boðið upp á kynningu en það er ekki skilyrði til þátttöku.
15:30- 16:30: Erindi og vinnustofur (Klettur, Menntavísindasvið HÍ og í streymi)
- Tæknilæsi og gagnrýnin hugsun: Að nota gervigreind með
nemendum á ábyrgan hátt - Hróbjartur Árnason, Menntavísindasvið HÍ (vinnustofa í K-206 og á Teams)
-Grunnur að gervigreind í kennslu - Bryngeir Valdimarsson, Ölduselsskóli og Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir, Mixtúra (erindi í K-207 og á Teams)
-Hagnýting gervigreindar í skólastarfi - Loftur Árni Björgvinsson, Fjölbrautaskóli Snæfellinga (vinnustofa á Teams)
Ítarlegra yfirlit yfir kynningar á menntabúðum og erindin/vinnustofur má finna hér: https://bit.ly/stefnumot_vid_gervigreind
Hvenær: Fimmtudagur 21. nóvember kl. 14:30-16:30
Hvar: Klettur á Menntavísindasviði HÍ og í streymi (tilgreindar vinnustofur/erindi)*
*Hlekkir á Teams verða sendir á skráða þátttakendur
Fyrirspurnir sendast á: [email protected] og/eða [email protected]
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Mixtúra sköpunar- og upplýsingatækniver SFS, Stofa K101, Stakkahlíð, Menntavísindasvið Háskóla Íslands,Reykjavík, Iceland