Advertisement
Heimspekilegar vangaveltur um líf að loknu þessu, tilvist Guðs og einingu heimsins.Hér kallast á heimspeki Whiteheads og skrif Williams James um trúarreynslu.
Atburðurinn, sem grundvallandi eining alls, kemur hér við sögu því öll mannleg reynsla hvílir á atburðum. Má einu gilda hvort um er að ræða atburði sem eiga sér stað í framvindu daglegs lífs ellegar koma fyrir í vitundarlífi, draumalífi eða sálarlífi. Að ímynda sér eitthvað er t.d. atburður, draumur sömuleiðis, og að upplifa sálarsýn eða verða fyrir nær-dauða-reynslu er ekki síður atburður, sem getur mótað allt líferni upp frá því.
Hér er ekki spurt um hvað sé rétt eða rangt, raunverulegt eða óraunverulegt, heldur hvernig unnið er úr sérhverri reynslu og hvort tengja megi trúarreynslu guðdómi.
Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson er cand. theol. frá Háskóla Íslands og vígður prestur Þjóðkirkjunnar. Hann nam trúarheimspeki á árunum 2007-2009 við Claremont Graduate University í Kaliforníu.
-
Meðlimir í stúkunni Baldur standa fyrir þessum viðburði. Boðið er upp á kaffi og meðlæti að erindi loknu. Öll velkomin.
Advertisement
Event Venue
Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavík, Iceland, Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











