Advertisement
Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda verður haldin um hvítasunnuhelgina á Patreksfirði dagana 22.-25.maí 2026.Enginn verður svikinn af heimildamyndaveislu, gæðastundum í Skjaldborgarbíói, skrúðgöngu, plokkfiskveislu, limbókeppni og vornóttinni á Patreksfirði.
Skjaldborg er kraftmikil uppskeruhátíð heimildamyndahöfunda og eina íslenska kvikmyndahátíðin sem sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildamyndir. Reynsluboltar í faginu, byrjendur og hinn almenni áhorfandi koma saman á hátíðinni í skemmtilegu og skapandi samtali sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir þróun og miðlun íslenskrar heimildamyndagerðar.
Ókeypis er inn á allar heimildamyndirnar sem sýndar eru í bíóinu Skjaldborg sem staðsett er í hjarta bæjarins.
Hátíðarpassi veitir aðgang að allri dagskrá hátíðarinnar, sjávarréttaveislu, plokkfiskboði kvenfélagsins, partýi á laugardagskvöldinu og aðgang í sundlaugina og á tjaldstæðið alla helgina.
Heiðursgestur og heildardagskráruppröðun verður kynnt seinni hluta apríl en hún verður fjölbreytt og auk heimildamyndaveislu verða kynnt verk í vinnslu og Kvikmyndasafn Íslands sýnir perlur úr safni sínu.
Lokaball Skjaldborgar fer fram í Félagsheimili Patreksfjarðar að lokinni skrúðgöngu, verðlaunaafhendingu, kóngadansi og limbódanskeppni um hvítasunnu eins og hefð er fyrir.
Fleiri dagskrárliðir verða auglýstir í umræðum á þessum viðburði, á heimasíðunni og samfélagsmiðlum hátíðarinnar.
Þessu vill engin missa af!
Advertisement
Event Venue
Skjaldborgarbíó, Aðalstræti 27, 450 Vesturbyggð, Ísland, Patreksfjörður, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.





