Advertisement
Gengið úr Tálknafirði í Arnarfjörð um Krossadal yfir Selárdalsheiði gegnum Ketildali á slóðum Gísla í Uppsölum, Samúels listamanns og fleiri ábúenda í Arnarfirði um 45 km á 14 - 18 klst. á bjartri nóttu í sólsetri og sólarupprás. Orð fá ekki lýst þeim töfrum að ganga yfir nótt á bjartasta tíma ársins.Lágmark 8 manns og hámark 18 manns.
Verð:
Kr. 23.000 fyrir klúbbmeðlimi.
Kr. 28.000 fyrir gesti.
ATH ! Allir fjórir dagarnir frá mið 27. til sun 31. maí 2026 eru fráteknir í þessa ferð og verður þeir tveir dagar valdir sem henta best út frá veðurspá, þar sem við viljum ekki fara þessa leið nema í góðu veðri. Til að taka þátt í þessari ferð þarf því að taka frá alla dagana og gera ráð fyrir að grípa góðan veðurdag og skella sér af stað eftir veðurspá. Vöktum hana frá byrjun maí og tölum saman á umræðuþræðinum.
Til vara ef veður er alveg ómögulegt alla fimm dagana í lok maí, er laug 6. júní til fös 12. júní NB !
Gist á tjaldstæðinu í Bíldudal en hver og einn getur pantað aðra gistingu á Bíldudal á eigin vegum.
Mikilvægt að æfa mjög vel þol og úthald fyrir þessa ferð og jákvætt og lausnamiðað hugarfar skiptir sköpum.
Upplifunin af þessum ofurferðum yfir bjarta sumarnótt er allt önnur en í öðrum ferðum og engin leið að lýsa þessu nema sem yfirnáttúrulegri upplifun þar sem tenging við náttúruna verður mun sterkari en í dagsferðum og kjörnunin við mann sjálfan er öðruvísi en í öllum öðrum ferðum.
Okkar ráð er einfalt: Látum engan segja okkur hvort við getum þetta eður ei... nema okkur sjálf... með því að komast að því á eigin skinni !
Allar upplýsingar um ferðina á viðburði á vefsíðu okkar hér:
https://www.fjallgongur.is/event-details/ketildalir-um-selardalsheidi-i-arnarfjord-ofurgangan-2026-yfir-tofranott-i-solsetri-og-solaruppras
Advertisement
Event Venue
Bíldudalur, Hafnarbraut 2, 465 Vesturbyggð, Ísland, Patreksfjörður, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

