Advertisement
Tilvera býður til skemmtikvölds í tilefni af evrópsku vitundarvakningarviku um ófrjósemi sem haldin er dagana 3-9.nóvember 2025💫Við ætlum að gera kvöldið bæði fræðandi og fyndið.
Komdu og njóttu kvöldsins með frábæru fólki og í skemmtilegu spjalli.
Hvenær og Hvar?
🗓 Fimmtudagur 6. nóvember kl. 19:30
📍 Sigtún 42
Húsið opnar kl. 19:15
Dagskrá kvöldsins:
💬 Áslaug Kristjánsdóttir, kynfræðingur verður með stutt og fræðandi erindi um kynlíf og ófrjósemi.
✨ Hermosa kynnir kynlífstæki og sýnir okkur allt það nýjasta á markaðinum, fólki gefst kostur á að versla tæki og annað á góðu verði.
😂 Guðmundur Einar kemur með sitt einstaka uppistand. Ef þú sást sýninguna „Lítill töffari“, þá veistu að þú átt von á góðu!
💻 Formleg opnun nýrrar heimasíðu tilvera.is
Trúbador spilar skemmtilega tónlist og allir geta tekið undir.
🥂 Búbblur og léttar veitingar og auðvitað frábær stemning í boði.
💜 Öll hjartanlega velkomin, hvar sem þið eruð stödd í ófrjósemisbaráttunni eða ef þið viljið bara einfaldlega hlæja, fræðast og eiga notalega kvöldstund í góðum félagsskap.
👉 Félagsfólk Tilveru er sérstaklega hvatt til að mæta – og endilega dragið með ykkur skemmtilegt fólk, vinkonuhópinn eða vininn sem alltaf heldur uppi stuði! Því fleiri, því betra!
Komdu og vertu með okkur.
#Tilvera #Vitundarvakning #Ófrjósemi #Kynheilsa #Fræðsla #hlátur
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Sigtún 42, 105 Reykjavík, Iceland, Sigtún 42, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











