SKAGAROKK 2026

Fri, 10 Apr, 2026 at 08:00 am UTC+00:00

Bíóhöllin Akranesi | Reykjavík

\u00d3lafur P\u00e1ll Gunnarsson
Publisher/HostÓlafur Páll Gunnarsson
SKAGAROKK 2026
Advertisement
Skagarokk snýr aftur!
Dagana 10. og 11. apríl nk. ætla 6 frábærar hljómsveitir að spila í Bíóhöllinni á Akranesi undir nafninu Skagarokk 2026.
Föstudagskvöldið verður spilað þungarokk:
Black Sabbath Rokkmessa
Múr
Bastarður
Laugardagskvöldið er það önnur músík og örlítið léttari:
Hjálmar
Spacestation
Oyama
Akranes var oft kallað Skipaskagi á árum áður þegar Akranes var útgerðarbær og þaðan kemur Skaginn í Skagarokk.
Skagarokk er mini-festival!
https://tix.is/event/21199/skagarokk-2026
Skagarokk var fyrst haldið í Bíóhöllinni á Akranesi árið 1989 og svo aftur 1990. Þar komu mestmegnis fram hljómsveitir frá Akranesi en tónlistarlífið á Akranesi þá var mjög blómlegt.
Siggi Sverris sem hafði verið með þungarokksþáttinn Bárujárn á
Rás 2 og var ritstjóri Skagablaðsins var svo maðurinn á bakvið Skagarokk þegar það var stærst. Hann hugsaði stórt og ákvað að gera alvöru Skagarokk í íþróttahúsinu á Akranesi í lok september 1992 og fékk hvorki meira né minna en Jethro Tull og Black Sabbath til að koma og spila á Akranesi. Já þetta er satt – það gerðist!
Jethro Tull spilaði fyrir 1500 manns c.a. á föstudagskvöldi og Black Sabbath fyrir 300 manns í íþróttahúsinu á Akranesi. Sveitin var þá nýkomin frá Suður Ameríku þar sem hún spilaði á stórum íþróttaleikvöngum fyrir tugi þúsunda.
Það var gríðarlegt tap af þessu tónleikahaldi og Siggi ákvað að segja þetta gott af Skagarokki.
En árið eftir var haldið Skagarokk aftur í Bíóhöllinni á Akranesi. Að því stóðu Bjarki Kaikumo söngvari hljómsveitarinnar Lipstick Lovers og Skagamaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson sem starfaði þá sem hljóðmaður á Ríkisútvarpinu.
Á Skagarokki 1993 og 1994 spiluðu hljómsveitir og listamenn eins og Bubbi Morthens – Jet Black Joe – Olympia, Lipstick Lovers, Stripshow, Kombóið, Silfurtónar ofl.
Síðan eru liðin mörg ár og komið að fyrsta Skagarokkinu í 32 ár og nú er það ekki eitt kvöld heldur tvö – Festival í anda Skagarokks 92.
Það Þótti við hæfi að blása lífi í Skagarokk með Black Sabbath. Black Sabbath er ekki lengur til og Ozzy Osbourne sem upphaflega átti að spila á Akranesi er látinn. En við íslendingar eigum okkar Black Sabbath í Black Sabbath rokkmessubandinu sem er skipað hetjum úr íslensku rokksenunni: Jenni (Brainpolice), Franz (Ensími, Dr. Spock), Hallur (HAM, Brimbrot, 13) og Flosi (HAM). Þeir munu loka föstudagskvöldinu en fyrir hlé spila hljómsveitirnar Bastarður og MÚR.
Bastarður er hálfgerð súpergrúppa skipuð hetjum úr þekktum íslenskum þungarokkshljómsveitum og mun opna föstudagskvöldið. Meðlimir eru Aðalbjörn Tryggvason (Sólstafir) sem syngur - Ari Steinarsson (Strigaskór nr. 42) – trommur - Gísli Sigmundsson (Sororicide) – bassi - Ingi Þór Pálsson (I Adapt) – gítar og Snæbjörn Ragnarsson (Skálmöld) – gítar. Bastarður spila kröstpönkdauðarokk - hátt og hratt.
MÚR er eitt magnaðasta rokkband sem Ísland hefur alið af sér. Þungt og dramatískt en líka melódískt og fullt af meiningu. MÚR sem gaf út fyrstu stóru plötuna sína 2024 er á mikilli siglingu til útlanda og það verður virkilega gaman að sjá þessa ungu menn á sviðinu í Bíóhöllinni á Akranesi.
Oyama sem mun opna laugardagskvöldið er stórskemmtileg sveit úr Reykjavík sem hefur verið starfandi í meira en áratug og sendi frá sér stóra plötu 2024 – plötuna Everyone left. Tónlist Oyama hljómar í eyrum aðstandenda Skagarokks sem einskonar drauma-rokk-popp og minnir á Coctau Twins, Slowdive eða jafnvel Cranberries.
Spacestation stökk inn á tónlistarsviðið fyrir tveimur árum og fyrsta platan þeirra kom út á síðasta ári og var valin rokkplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Spacestation sem minnir stundum á Velvet Underground og Sonic Youth er rokkhljómsveit úr Reykjavík sem hefur spilað mikið í útlöndum undanfarin 2 ár, á tónlistarhátíðum eins og The Great Escape auk þess sem BBC radio one valdi Spacestation til að taka þátt í samsendingu 5 Evrópskra útvarpsstöðva á dögunum – Europe´s Biggest Gig sem var sent út beint á Rás 2 – BBC Radio 1 og ríkisútvarpsstöðva í Portúgal, Þýskalandi og Írlandi.
Spacestation spilaði síðast á Akranesi á HEIMA-SKAGA 2024 við góðar viðtökur.
Hjálmar munu loka laugardagskvöldinu á Skagarokki 2026 – en Hjálmar hafa um árabil verið eitt besta tónleikaband landsins og spilar aftur og aftur fyrir fullu húsi víðsvegar um land. Hjálmar hafa frá árinu 2024 sent frá sér 9 stórar plötur. Síðustu tónleikar Hjálma á Akranesi voru einmitt í smekkfullri Bíóhöllinni sumarið 2019 og margir hafa beðið eftir að þeir komi aftur.
Andi Einars Skúlasonar svífur yfir vötnum á Skagarokki, en hann lést sumarið 2023. Hann var líkast til mesti tónlistarunnandi Akraness og sá sem hlustaði mest á tónlist. Hann var líka einn þeirra sem stóð að Skagarokki 1992 þegar Jethro Tull og Black Sabbath spiluðu í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Hann tapaði talsverðum peningum á því en sagði oft að hann myndi óhikað gera þetta aftur.
Bíóhöllin á Akranesi er eitt besta tónleikahús landsins – byggt 1942 af útgerðarhjónunum Haraldi Böðvarssyni og Ingunni Sveinsdóttur sem gáfu Akurnesingum húsið fullbúið með flygli á sviðinu.
Advertisement

Event Venue

Bíóhöllin Akranesi, Vesturgata 27, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

 Morgunbollinn \u2013 Streita og bjargr\u00e1\u00f0 me\u00f0 Krist\u00ednu \u00de\u00f3ru Haraldsd\u00f3ttur
Thu, 09 Apr at 10:00 am Morgunbollinn – Streita og bjargráð með Kristínu Þóru Haraldsdóttur

Sigtún 42, 105 Reykjavík, Iceland

Sk\u00e1ldaval \u2013 b\u00f3kakl\u00fabbur \/\/ Fr\u00ed\u00f0a \u00cdsberg velur Big Kiss, Bye-Bye
Thu, 09 Apr at 08:00 pm Skáldaval – bókaklúbbur // Fríða Ísberg velur Big Kiss, Bye-Bye

Vesturgata 10a, 101 Reykjavík, Iceland

SPEGILL FORT\u00cd\u00d0AR - SILFUR FRAMT\u00cd\u00d0AR
Thu, 09 Apr at 08:00 pm SPEGILL FORTÍÐAR - SILFUR FRAMTÍÐAR

Faxafen 14, 108 Reykjavíkurborg, Ísland

Water Is The Sun\/\u00de\u00f3rir Georg\/Adam Buffington
Thu, 09 Apr at 08:00 pm Water Is The Sun/Þórir Georg/Adam Buffington

Óðinsgata 2, 101 Reykjavík, Iceland

Get Together: List, samf\u00e9lag og \u00edmyndum okkur sameiginlega framt\u00ed\u00f0
Fri, 10 Apr at 02:00 pm Get Together: List, samfélag og ímyndum okkur sameiginlega framtíð

Gerðuberg, 111 Reykjavíkurborg, Ísland

E.T. The Extra-Terrestrial \u2013 B\u00ed\u00f3t\u00f3nleikar
Fri, 10 Apr at 07:00 pm E.T. The Extra-Terrestrial – Bíótónleikar

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

Mamma Mia! - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 10 Apr at 09:00 pm Mamma Mia! - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Sn\u00e6fellsj\u00f6kull 1.446m
Sat, 11 Apr at 10:00 am Snæfellsjökull 1.446m

Snæfellsjökull Glacier

Pilateskennaran\u00e1m 2026
Sat, 11 Apr at 10:00 am Pilateskennaranám 2026

Dansverkstæðið

Anna S. Bjarnad\u00f3ttir: Hreyfing \u00ed kyrr\u00f0
Sat, 11 Apr at 02:00 pm Anna S. Bjarnadóttir: Hreyfing í kyrrð

Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events