Advertisement
Skáldaval er nýr bókaklúbbur Skáldu þar sem rithöfundur eða skáld velur bók sem verður til umræðu eina kvöldstund. Fríða Ísberg mun ýta Skáldavali úr vör og hún valdi bókina Big kiss, bye-bye eftir breska rithöfundinn Claire-Louise Bennet. „Ég er enn að lesa þessa bók; ég er bara hálfnuð og mig langar svo að ræða hana við einhvern. Hér er mjög lítið plott, bara innri heimur konu, að rifja upp fyrri sambönd sín við karlmenn,“ segir Fríða um ástæðu þess að hún valdi Big kiss, bye-bye.Til þess að taka þátt í Skáldavali þarftu einfaldlega að kaupa bókina í Skáldu eða í vefverslun og þú færð skilaboð þegar þú getur sótt bókina. Bókaklúbburinn mun síðan hittast kl. 20 fimmtudaginn 9. apríl og Fríða leiðir umræður.
Athugið að takmarkaður fjöldi er í boði!
https://skalda.is/vara/skaldaval-bokaklubbur-med-fridu-isberg-big-kiss-bye-bye/
Advertisement
Event Venue
Vesturgata 10a, 101 Reykjavík, Iceland, Vesturgata 10A, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






