Advertisement
Saxófónleikarinn Sigurður Flosason sendir frá sér glænýjan disk 24. apríl. Tónlistin er á mörkum jazz-, blús- og soultónlistar og er öll eftir Sigurð. Diskurinn ber titilinn Blue Shoes og er gefinn út af Prophone/Naxos útgáfunni í Svíþjóð. Upptökur fóru fram í Kaupmannahöfn síðastliðið sumar. Á diskinum leika danskir og sænskir tónlistarmenn en á útgáfutónleikum leika samstarfsmenn Sigurðar hér á landi til margra ára; Einar Scheving á trommur, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Agnar Már Magnússon á Hammond-orgel.
Advertisement
Event Venue
IÐNÓ, Vonarstræti 3,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











