Samverustund og hóphandleiðsla fyrir fósturforeldra

Mon Mar 23 2026 at 08:00 pm to 10:30 pm UTC+00:00

Mannréttindahúsið | Reykjavík

F\u00e9lag f\u00f3sturforeldra
Publisher/HostFélag fósturforeldra
Samverustund og h\u00f3phandlei\u00f0sla fyrir f\u00f3sturforeldra
Advertisement
Undanfarið hafa margar sögur komið fram um hræðilegt ofbeldi sem börn urðu fyrir í vistun á Bakkakoti. Sú umfjöllun og umræða um fósturmál í framhaldinu hefur hreyft við mörgum og þá sérstaklega okkur fósturforeldrum.
Samfélagsumræða um þessi efni geta vakið upp erfiðar og flóknar tilfinningar eða jafnvel spurningar. Sum okkar eru einnig að annast börn sem hafa sjálf upplifað ofbeldi eða vanrækslu og því getur umræðan verið “triggerandi”, bæði fyrir okkur og börnin. Því er mikilvægt að við sem samfélag fósturforeldra stöndum saman og séum til staðar fyrir hvort annað.

Í ljósi þess býður Félag fósturforeldra félagsfólki sínu til samveru, samtals og hóphandleiðslu í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, mánudaginn 23. mars klukkan 20:00.
Við viljum endilega fá sem flest til að mæta í persónu en einnig verður fjarfundur fyrir þau sem kjósa að taka þátt heiman frá sér. Fjarfundarhlekkur verður sendur félagsfólki í tölvupósti og gerður aðgengilegur á lokuðum hóp félagsins. Boðið verður upp á léttar veitingar á staðnum.

Með okkur verður Guðbrandur Árni Ísberg, sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði, sem mun leiða samtalið. Hann mun taka á móti spurningum, hlusta á hvað brennur á ykkur og ræða hvernig hægt sé að vinna úr þeim tilfinningum sem kunna að vera að vakna, bæði hjá fósturforeldrum og börnum sem þau annast.
Guðbrandur hefur víðtæka reynslu. Hann hefur sinnt handleiðslu fyrir ýmsar fagstéttir, hefur unnið með börnum sem hafa upplifað ofbeldi og vanrækslu, foreldrum þeirra og öðrum sem koma að þeirra málum og þekkir vel til veruleika fósturforeldra.
Stjórnarfólk félagsins verður einnig á staðnum og mun veita innsýn í þau samtöl og vinnu sem félagið hefur þessar mundir við stofnanir og stjórnvöld.

Við vonum að þið sjáið ykkur fært að koma - til að hlusta, deila, eða einfaldlega njóta samveru þar sem skilningur og stuðningur er til staðar.
Advertisement

Event Venue

Mannréttindahúsið, Sigtún 42,Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

S\u00f3lr\u00fan & Jaakko
Sun, 22 Mar at 08:00 pm Sólrún & Jaakko

IÐNÓ

Fr\u00e6\u00f0akaffi | \u00cdslenskar d\u00fdras\u00f6gur
Mon, 23 Mar at 04:30 pm Fræðakaffi | Íslenskar dýrasögur

Borgarbókasafnið Spönginni

F\u00e6reysku kosningarnar- um hva\u00f0 er kosi\u00f0?
Mon, 23 Mar at 05:00 pm Færeysku kosningarnar- um hvað er kosið?

Óðinsgötu 7 , 101 Reykjavík, Iceland

Nordic Day 2026: The Future of Democracy
Tue, 24 Mar at 09:00 am Nordic Day 2026: The Future of Democracy

Sæmundargata 11, 101 Reykjavík, Iceland

GMI Meetup x Le Kock
Tue, 24 Mar at 06:00 pm GMI Meetup x Le Kock

Le KocK

MOBB DEEP \/\/ KR HEIMILI\u00d0 \/\/ 24.3.26
Tue, 24 Mar at 07:00 pm MOBB DEEP // KR HEIMILIÐ // 24.3.26

Meistaravellir

\u00d6skubuska - 3. s\u00fdning
Tue, 24 Mar at 07:00 pm Öskubuska - 3. sýning

Tjarnarbíó (Reykjavík, Iceland)

Kv\u00e1radagsgle\u00f0i 2026!
Tue, 24 Mar at 07:00 pm Kváradagsgleði 2026!

Loft - Hostel, Café & Bar

Heimager\u00f0 hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri \/\/ homemade instruments
Tue, 24 Mar at 07:00 pm Heimagerð hljóðfæri // homemade instruments

Mengi

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events