Rythmísk sátt- Korda Samfónía

Tue, 26 May, 2026 at 07:30 pm UTC+00:00

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre | Reykjavík

Korda Samf\u00f3n\u00eda
Publisher/HostKorda Samfónía
Rythm\u00edsk s\u00e1tt- Korda Samf\u00f3n\u00eda
Advertisement
‘Frelsi er ekki hlutleysi, það er virk þátttaka í sannleikanum, baráttu gegn ofbeldi, og siðferðisleg leit af alhliða réttlæti.’
(Mahathma Gandhi)
Korda Samfónía heldur sína árlegu stórtónleika í Silfurbergi þar sem frumfluttar verða nýjar tónsmíðar hljómsveitarinnar ásamt eldri verkum, sem öll hafa verið samin af meðlimum þessarar merkilegu sveitar. Korda Samfónía starfar ekki eftir hefbundnum lögmálum, tímalínum eða ferlum þegar kemur að tónlistarsköpun, heldur brýtur múra og skapar sína list í áhugaverðum suðupotti sköpunarkrafts hljómsveitarmeðlima. Hljómsveitin var handhafi hvatningarverðlauna Íslensku tónlistarverðlaunanna 2023 fyrir að nýta það jákvæða afl sem hlýst af tónlistariðkun, til uppbyggingar réttláts og hvetjandi samfélags fyrir öll.
Tónlist Kordu Samfóníu er ekki auðvelt að skilgreina, en hún ber áhrif úr rokki, djassi og dægurtónlist, heimstónlist og vestrænni klassísk. Hljómsveitin er skipuð faglærðu tónlistarfólki, háskólanemum og einstaklingum í bata eftir lífsbreytandi áföll sem ýmist hafa lokið eða eru í virkri starfsendurhæfingu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Listaháskóla Íslands, Hörpu, Tónlistarborgina Reykjavík og starfsendurhæfingamiðstöðvar um land allt.
Á tónleikunum fagnar hljómsveitin útgáfu sinnar annarrar breiðskífu sem ber nafnið Ný vídd. Hljómplatan inniheldur valdar upptökur frá síðustu tveimur tónleikum sveitarinnar í júní 2024 og maí 2025.
Yfirskrift tónleikanna í ár er Rythmísk sátt
Á uggandi tímum, lítum við í átt til fyrri kynslóða baráttufólks, fyrir frelsi og betra samfélagi. Til þeirra sem börðust fyrir réttlæti og neituðu að láta undan ótta, ofsóknum og ógnarstjórn. Hvað getum við lært af risum réttlætisbaráttu fortíðarinnar? Hvernig forðumst við enn frekari ófarir og hörmungar. Getum við tileinkað okkur lífsspeki sem byggir á gildum er vernda heimkynni okkar og skapa réttlátt samfélag fyrir öll, burtséð frá uppruna, efnahag, kyni, kynhneigð, pólítískum skoðunum sem og lífsskoðunum?
Með orðum Mathatma Gandhi: ‘Frelsi er ekki hlutleysi, það er virk þátttaka í sannleikanum, baráttu gegn ofbeldi, og siðferðisleg leit af alhliða réttlæti.’
Listrænn stjórnandi: Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths
Aðstoðarstjórnendur: Þráinn Þórhallsson, Sævar Helgi Jóhannsson
Stjórnendateymi og gestaflytjendur: Sigtryggur Baldursson, Ingibjörg Fríða Helgadóttir, Óskar Guðjónsson, Þorbjörg Daphne Hall.
Korda Samfónía og starfsnám MetamorPhonics er fjármagnað af fjórum ráðuneytum Ríkisstjórnar Íslands: Heilbrigðisráðuneyti, Félags og húsnæðismálaráðuneyti, Mennta og barnamálaráðuneyti og Háskóla, menningar og nýsköpunarráðuneyti. Verkefnið er dyggilega stutt af Listaháskóla Íslands, Tónlistarborginni Reykjavík og Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi.
Útgáfa hljómplötunnar Ný vídd er liður í þriggja ára rannsóknarverkefni fjögurra háskóla á Íslandi og í Bretlandi undir nafninu Building Bridges Through Collaboration og styrkt er af Rannsóknasjóði Íslands. Háskólarnir sem vinna að rannsóknarverkefninu eru: Listaháskóli Íslands, sem jafnframt hýsir rannsóknina, Háskólinn á Bifröst, York St John University og Guildhall School of Music and Drama í London.
Við þökkum styrktaraðilum og hagaðilum öllum ómældan stuðning og traust á starfsemi þessa verkefnis sem vinnur frumkvöðlastarf á sviðum endurhæfingar, geðheilbrigðis, nýsköpunar í listum og háskólamenntunar.
Advertisement

Event Venue

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

M\u00falakvintettinn leikur Coltrane \u00e1 M\u00falanum
Wed, 27 May at 08:00 pm Múlakvintettinn leikur Coltrane á Múlanum

Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland

Eldar & Reynir | Vinyl Wednesday \u00e1 R\u00f6ntgen
Wed, 27 May at 09:00 pm Eldar & Reynir | Vinyl Wednesday á Röntgen

Röntgen

N\u00e1mskei\u00f0 \u00ed IFS-partavinnu: Lota 2 n\u00e1nar um n\u00e1mskei\u00f0 kemur flj\u00f3tlega
Thu, 28 May at 09:00 am Námskeið í IFS-partavinnu: Lota 2 nánar um námskeið kemur fljótlega

Ármúli 40 (3. hæð), 108 Reykjavík, Iceland

Saffran Hlaupi\u00f0
Thu, 28 May at 06:30 pm Saffran Hlaupið

Gufunesvegur, 112 Reykjavíkurborg, Ísland

Anna Magga & Sigurhj\u00f6rtur
Thu, 28 May at 08:00 pm Anna Magga & Sigurhjörtur

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland

Opening doors
Fri, 29 May at 10:00 am Opening doors

Norræna húsið The Nordic House

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events