Kyrkingartak: Ein grófasta birtingarmynd kynbundins ofbeldis

Wed May 27 2026 at 08:30 am to 04:30 pm UTC+00:00

Menntavegur 1, 102 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

Lagadeild H\u00e1sk\u00f3lans \u00ed Reykjav\u00edk
Publisher/HostLagadeild Háskólans í Reykjavík
Kyrkingartak: Ein gr\u00f3fasta birtingarmynd kynbundins ofbeldis
Advertisement
---Skráning á ráðstefnuna er nauðsynleg, hvort sem þátttakendur mæta á staðinn eða fylgjast með í streymi---
Ráðstefna um kyrkingartak fer fram á vegum lagadeildar Háskólans í Reykjavík miðvikudaginn 27. maí 2026 í samstarfi við Dómsmálaráðuneytið, Lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu, Bjarkarhlíð, Kvennaathvarfið og Stígamót.
Skráning á ráðstefnuna (bæði á staðinn og í streymi): https://forms.office.com/e/Mxc7bPgKDx
Lykilfyrirlesari er Gael Strack, ein af stofnendum samtakanna Alliance for Hope Int. Innan samtakanna eru Landssamtök þolendamiðstöðva, en íslensku þolendamiðstöðvarnar (Bjarkarhlíð, Bjarmahlíð, Sigurhæðir og Suðurhlíð) byggja á því líkani, auk þess sem samtökin reka sérstakt Fræðslu- og menntasetur um kyrkingar, Training Institute on Strangulation Prevention.
Orðspor Gael hefur breiðst langt út fyrir landsteinana. Hún er eftirsóttur fyrirlesari um allan heim, auk þess sem hún heldur námskeið og vinnustofur fyrir fagfólk. Gael, sem er lögfræðingur að mennt, starfaði áður sem saksóknari í San Diego (San Diego City Attorney‘s Office) þar sem hún bar ábyrgð á þeim málaflokki er laut að heimilisofbeldi og ofbeldi gegn börnum. Hún hefur ritað fjölda bóka og fræðigreina um kyrkingar, alvarleika þeirra og lífshættulegar afleiðingar.
Dagskrá:
Kl. 8.30 – Skráning og morgunkaffi
Kl. 9.00 – Ávarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra
Kl. 9.30 – Gael Strack flytur erindið Kyrkingartak: Lokaviðvörunin. Fjallað verður um alvarleika kyrkinga og þá lífshættu sem þær skapa, einkenni gerenda sem beita kyrkingartaki og tengsl kyrkinga við önnur alvarleg ofbeldisbrot, þar á meðal morð á lögreglumönnum og fjöldaskotárásir. Kynntar verða niðurstöður bandarískrar rannsóknar á 300 kyrkingarmálum, farið yfir löggjöf á sviðinu og fjallað um markmið og starfsemi Fræðslu- og menntaseturs um kyrkingar. Þá verður fjallað um læknisfræðilega þætti kyrkinga bæði hjá þeim þolendum sem lifa ofbeldið af og þeim sem deyja, auk nýrra og aðkallandi áskorana tengdum kyrkingarofbeldi.
Hádegishlé
13.00 – Pétur Guðmann Guðmannsson réttarlæknir á Landspítala og lektor við læknadeild HÍ fjallar um réttarlæknisfræðilega þætti kyrkingartaks, túlkun áverka og lífshættu. Pétur hefur rannsakað sérstaklega áverka á hálsi og aðstoðað lögreglu við fjölda rannsókna á ofbeldisverkum þar sem kyrkingartaki hefur verið beitt.
14.00 – Dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir dósent við lagadeild HR fjallar um rannsókn á dómum í ofbeldismálum þar sem kyrkingartaki hefur verið beitt.
Kaffihlé
15.00 – Pallborðsumræður með þátttöku Bjarkarhlíðar, Kvennaathvarfsins og Stígamóta. Jenný Kristín Valberg teymisstýra mætir fyrir hönd Bjarkarhlíðar, Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra fyrir hönd Kvennaathvarfsins og Drífa Snædal talskona fyrir hönd Stígamóta. Til viðbótar mun nýskipaður ríkislögreglustjóri, Halla Bergþóra Björnsdóttir, sitja í pallborði.
16.30 - Ráðstefnuslit
Skráning á ráðstefnuna er nauðsynleg, hvort sem þátttakendur mæta á staðinn eða fylgjast með í streymi
Fimmtudaginn 28. maí stendur Gael Strack fyrir vinnustofu fyrir fagfólk innan réttarvörslukerfisins og fagfólk sem sinnir þjónustu og stuðningi við þolendur. Vinnustofan er haldin í HR og stendur frá kl. 9-15. Ekki er boðið upp á streymi á vinnustofunni.
Skráning á vinnustofu fyrir fagfólk: https://forms.office.com/e/8zkQgyK3wb
Advertisement

Event Venue

Menntavegur 1, 102 Reykjavík, Iceland, Menntavegur 1, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Spennandi n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed ma\u00ed 2026
Tue, 26 May at 01:00 pm Spennandi námskeið í maí 2026

Ofanleiti 2, 103 Reykjavík, Iceland

Komdu \u00ed heims\u00f3kn! Opi\u00f0 h\u00fas \u00ed H\u00e1sk\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk
Tue, 26 May at 03:00 pm Komdu í heimsókn! Opið hús í Háskólanum í Reykjavík

Menntavegur 1

Rythm\u00edsk s\u00e1tt- Korda Samf\u00f3n\u00eda
Tue, 26 May at 07:30 pm Rythmísk sátt- Korda Samfónía

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

T\u00f3nheilunar m\u00fdkt og mildi  inn \u00ed sumari\u00f0 me\u00f0 Berglindi og Arnari
Wed, 27 May at 05:00 pm Tónheilunar mýkt og mildi inn í sumarið með Berglindi og Arnari

Bolholt 4. 4 hæð, 105 Reykjavík Reykjavík, Iceland

Databeers Reykjavik #15
Wed, 27 May at 05:30 pm Databeers Reykjavik #15

Ölgerðin Egill Skallagrímsson

M\u00falakvintettinn leikur Coltrane \u00e1 M\u00falanum
Wed, 27 May at 08:00 pm Múlakvintettinn leikur Coltrane á Múlanum

Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland

Vorbl\u00f3mstrandi laukar og hn\u00fd\u00f0i
Wed, 27 May at 08:00 pm Vorblómstrandi laukar og hnýði

Laugardalur , 104 Reykjavík, Iceland

Eldar & Reynir | Vinyl Wednesday \u00e1 R\u00f6ntgen
Wed, 27 May at 09:00 pm Eldar & Reynir | Vinyl Wednesday á Röntgen

Röntgen

N\u00e1mskei\u00f0 \u00ed IFS-partavinnu: Lota 2 n\u00e1nar um n\u00e1mskei\u00f0 kemur flj\u00f3tlega
Thu, 28 May at 09:00 am Námskeið í IFS-partavinnu: Lota 2 nánar um námskeið kemur fljótlega

Ármúli 40 (3. hæð), 108 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events