Advertisement
La Brújería býður þér að koma með í ljúfa og endurnærandi rósa-dekurgufu Sumarið er komið og hvílíka gleði og von sem það ber okkur með hlýjum sólargeislum, grösin byrja að grænka, blómin að birtast og bláminn á himnum lyftir okkur upp. Í apríl og maí heiðrum við sumargáttina sem opnast og gefur bjartar vonir og tækifæri til að tengjast við okkur sjálf og náttúruna berfætt í grasinu í hugleiðslu við foss og fuglasöng.
Sumarið og sólin verður þema í dekurgufunni á næstunni
Rósa dekurgufa er mild, róleg og nærandi gufustund þar sem við prufum húð og heilsuvörur frá La Brújería, gerum einfaldar öndunar og hugleiðsluæfingar ásamt því að opna inná röddina með því að tóna og syngja eilítið saman til að sefa taugakerfið og létta lundina
næstu dagsetningar eru :
Fimmtudaginn 30.4 sem er “Walpurgis-nóttin” en það er forn nornanótt í germönskum sið og einskonar undirbúningur fyrir “Beltane” frjósemishátíð sem er haldin
Föstudaginn 1.maí en þá fögnum við líka verkalýðsdegi íslendinga OG fullu tungli
Þessi stóru tímamót kalla því á tvær gufuathafnir!
á fimmtudeginum kl 17 og svo á föstudeginum kl 12
Þá verður einnig haldin dekurgufa með nýju tungli 16.maí og svo undir öðru fullu tungli maí mánaðar þann 30.maí en það er kallað blue moon
Gufustundin er rúmega 1 klst með þremur lotum og stuttum pásum inná milli.
Boðið verður uppá vatn með jurtatinktúru, tungl-hugleiðslu, líkams og andlitsskrúbba ásamt húðolíum og í lokin verður hægt að kíkja á litlu nornabúðina með varning frá La Brújería
Þorgerður Gefjun sér um leiðsögn og fræðslu.
Það er mikilvægt að kaupa pláss á heimasíðunni, hér:
https://www.labrujeria.is/event-list
Verð 5500kr.
Advertisement
Event Venue
Post-húsið, Skeljanes 27, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.








