Advertisement
Pilateskennaranám í gólfæfingum Pilates (e. Comprehensive Pilates Mat)hefst þann 11. og 12. apríl.Námið er kennt á Íslandi í samstarfi við the Kane School Pilatesskólann í New York borg.
Guðrún Svava Kristinsdóttir sér um námið og er eigandi þess á Íslandi.
The Kane School er þekktur fyrir að þjálfa hæfileikarík kennaraefni sem geta unnið markvisst með veikleika, ójafnvægi og meiðsli. Boðið er upp á ítarlega kennslu í líffærafræði stoðkerfisins og góðri líkamsbeitingu og jafnframt verður farið í hugvitsamlegar lausnir á ýmsum stoðkerfisvandamálum með hjálp Pilates og hreyfingar.
Dagsetningar:
Helgarnar:
11. og 12 apríl: 10:00-16:00
25. og 26. apríl: 10:00-16:00
9. og 10. maí: 9-16:00
23. og 24. maí: 9-16:00
Námskeiðið verður kennt verður á Dansverkstæðinu, Hjarðarhaga 47.
* Ath. að staðsetning er birt með fyrirvara um smávægilegar breytingar komi þær til.
Vottanir og réttindi
Námið viðurkennt af PMA (Pilates Method Alliance) og NASM (National Academy of Sports Medicine).
Guðrún Svava Kristinsdóttir er Pilates-kennari frá Kane School (2012) í mat og equipment/apparatus, dansari og danskennari frá the Martha Graham School í NYC og verkfræðingur.
Inntökuskilyrði
Forkröfur fyrir námið er að nemendur hafi iðkað Pilates og séu kunnugir æfingakerfinu.
Námsbækur eru á ensku og námsefnið inniheldur fræðilegan texta með vísanir í latínu og grísku sbr. líffærafræði námsefnið. Mikilvægt er að nemendur treysti sér til að leggja á sig vinnu eigi þeir erfitt með önnur tungumál en íslensku. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða nálgun og aðstoð, en mikilvægt er að nemendur leiti sér aðstoðar sjálfir.
Verð: 310.000kr
* snemmskráningarverðið er 290.000 kr. ef skráning er fyrir 21. mars
Greiða skal staðfestingargjald, 30.000 kr sem fyrst til að staðfesta pláss.
Námsgjaldið inniheldur allt námsefni þ.e bækur og hefti og aðgangur að kennsluefni á netinu.
Ekki innifalið í verðinu er áskrift af sérstökum Pilatestímum á netinu á meðan námi stendur í gegnum the Kane School sem nemendur kaupa sjálfir og er kostar $25 USD á meðan námi stendur.
Stéttarfélög taka þátt í greiðslum. Hægt er að skipta greiðslum eftir samkomulagi.
Greiða skal á reikning:
rn: 0370-13-012727
kt. 450922-2180
* afsláttur fyrir meðlimi FÍLD eða starfandi listamenn er 5%
Spurningar og skráning: [email protected]
Nánari upplýsingar og skráning: https://pilatesbygudrunsvava.squarespace.com/
Advertisement
Event Venue
Dansverkstæðið, Hjarðarhagi 47,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.








