Advertisement
KUSK & Óviti og Lára koma fram á Stúdentakjallaranum föstudaginn 10. apríl. Það er frítt inn og tónleikarnir hefjast klukkan 21:00. KUSK & Óviti, eða Hrannar og Kolbrún, eru popp tónlistartvíeyki og hafa unnið saman síðan 2021. Með blöndu af popp, raf og danstónlist vinna Kolbrún og Hrannar saman í öllu frá textasmíð, pródúseringu, lagasmíðum og framkomu bæði innanlands sem utan. Haustið 2025 gáfu þau út sína fyrstu sameiginlegu breiðskífu “RÍFAST” í samstarfi við plötuúfgáfuna Sticky Records. Í kjölfar þess komu þau fram á stórhátíðinni Iceland Airwaves, slógu botninn í Vikunni með Gísla Marteini og héldu útgáfutónleika í tónleikahúsinu iðnó.
Lára er ung tónlistarkona sem semur og útsetur sína eigin raftónlist. Hún hefur verið á kafi í tónlist frá unga aldri, lærði á píanó og stundar nú nám við Menntaskólann í tónlist. Lára hefur sérstakt yndi af því að skapa og móta hljóðheim; hún leitar uppi óvenjuleg hljóð, vinnur með hljóðbrot og setur þau saman á skapandi hátt. Nýverið náði hún þriðja sæti í Músíktilraunum og var jafnframt valin Rafheili keppninnar.
Advertisement
Event Venue
Stúdentakjallarinn, Sæmundargata 4, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











