Advertisement
Kæru Akurnesingar og nærsveitungar.Kraftur er klúbburinn sem enginn vill vera í. Við tökum vel á móti ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum, veitum þeim stuðning og reynum að létta þeim lífið með fjölbreyttri þjónustu.
Kraftur stuðningsfélag mætir á Akranes og heldur stóran ,,Perlað af Krafti" viðburð í Fjölbrautaskóla Vesturlands laugardaginn 22. nóvember 2025. Þar verður opið hús þar sem öllum býðst að perla nýja ,,lífið er núna" armband Krafts sem fer í sölu í næstu herferð stuðningsfélagsins í janúar 2026.
Við þurfum alla þá hjálp sem býðst og hafa Akurnesingar tekið vel á móti okkur áður. Gaman væri að fá enn betri þátttöku í ár og biðjum við ykkur um að skrá komu ykkar hér að neðan til að fá mynd á mætinguna.
Perlið hentar frá sirka 7 ára aldri og gott er að börn séu með forráðamann með sér til að hjálpa sér.
Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur í opnu húsi frá kl 13-16, þann 22. nóvember næstkomandi. Fjölmennum og sýnum stuðning í verki! <3
SKRÁNING: https://forms.gle/Pxm3GjF94j2bDmFp7
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
FVA - Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi, Vogabraut 5, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.








