Advertisement
Páll Óskar & Benni Hemm Hemm rifu þakið af Austurbæjarbíói á útgáfutónleikum sínum í október síðastliðnum. Samstundis hófst mikil eftirspurn eftir því að endurtaka leikinn og loksins er komið að því. Á tónleikunum leika Palli & Benni öll lögin af plötunni Alveg sem hefur ómað um allt land síðan hún kom út. Auk þess verður hent í partí með smellum úr fórum þeirra beggja.
Palli & Benni verða ekki einir á sviðinu - það þarf 40 manns til að púsla saman þessum hljóðvegg - hljómsveit, strengjakvartett, blásara og kór.
Advertisement
Event Venue
Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.









