Advertisement
FLÆÐI er sýning á völdum verkum Sölva Helgasonar (1820-1895) alþýðulistamanns, sem gekk undir nafninu Sólon Íslandus.Verk Sölva hafa alla tíð notið aðdáunar og fléttast saman við sögu hans sjálfs, alþýðulistamannsins sem lét hvorki vistarbönd né önnur boð og bönn samfélagsins hafa áhrif á líf sitt. Segja má að verk Sölva hafi flætt á milli tímabila og listforma en flæðið er lykilhugtak í höfundaverki hans þar sem fígúratívar teikningar, texti og ýmiskonar krot renna saman í frumlegan myndheim. Næmni hans birtist í fínlegum skreytingum þar sem blómsveigar og annað mynstur liðast um pappírinn, oft með óvæntri viðbót þegar stafir, mannsandlit eða önnur tákn birtast. Þannig vísar Sölvi í umhverfið á ferðum sínum.
Við opnun sýningarinnar heldur hljómsveitin Mógil útgáfutónleika á nýrri plötu sinni, en innblástur hennar er fenginn úr myndum og textum Sölva. Platan ber viðvarandi áhrifum Sölva Helgasonar á listsköpun annarra glöggt vitni og verður tónlist Mógils hluti af sýningunni.
Hljómsveitin Mógil
Heiða Árnadóttir - Söngur
Eiríkur Orri Ólafsson - Trompet
Joachim Badenhorst - Klarinett
Kristín Þóra Haraldsdóttir - Víóla
Hilmar Jensson - Rafgítar
-----
FLOW is an exhibition of selected works by Sölvi Helgason, who went by the pseudonym Sólon Íslandus.
His much-admired works are closely intertwined with his own story - that of a folk artist who refused to bow to societal restrictions and social norms. Sölvi’s works flowed between art forms and periods; a flow where figurative drawings, sketches, texts, and various scribbles merge into a distinctive visual world. His sensitivity is evident in delicate illustrations where garlands of flowers and other patterns twirl across the paper, often accompanied by unexpected additions such as letters, faces, or symbolic motifs that refer to places and people he encountered on his travels
At the opening of the exhibition, the band Mógil will hold a release concert for their new album, which is inspired by Sölvi’s images and writings. The album provides yet another example of how Sölvi Helgason continues to influence other artists, the music will be part of the exhibition.
Mógil
Heiða Árnadóttir – Vocals
Eiríkur Orri Ólafsson – Trumpet
Joachim Badenhorst – Clarinet
Kristín Þóra Haraldsdóttir – Viola
Hilmar Jensson – Electric guitar
Advertisement
Event Venue
Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland, Suðurgata 41, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.





