Advertisement
Pláneta mætir í Bókasafn Mosfellsbæjar og býður börnum á sporbaug um veröld sína fulla af skynjunarleik! Í leikstundinni förum við í ferðalag fullt af mismunandi hljóðum, áferðum, efnivið og skynupplifunum. Skynjunarleiksmiðjur Plánetu eru til þess fallnar að allir fái að kynnast nýjum skynjunarupplifunum á skemmtilegan og gagnvirkan máta.Leiksmiðjurnar henta sérstaklega vel fyrir ung börn sem eru ekki byrjuð í leikskóla, ásamt foreldrum, öfum og ömmum eða öðrum umönnunaraðilum. Við leggjum áherslu á að skapa notalegt umhverfi þar sem börn geta uppgötvað heiminn í gegnum skynörvun á sínum eigin hraða.
Leikstundin fer fram í fjölnotasal safnsins, Fiskabúri.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin!
Um Plánetu:
Jorika og Siggi eru ákafir foreldrar sem uppgötvuðu töfra skynjunarleiks fljótlega eftir fæðingu frumburðar þeirra. Þau höfðu svo gaman af og sáu þann ótrúlega ávinning sem skynjunarleikur hafði á þroska dóttur þeirra að þau fundu sig tilneydd að deila reynslu sinni og upplifunum með öðrum foreldrum á Íslandi. Með leiksmiðjum sínum leitast Jorika og Siggi við að hjálpa öðrum foreldrum að uppgötva jákvæð áhrif skynjunarleiks á þroska barnanna og leyfa sköpunarhæfni þeirra að blómstra.
---
Pláneta is coming to Mosfellsbær Public Library and invites children into orbit around its world full of sensory play!
During this play session, we will go on a journey filled with different sounds, textures, materials, and sensory experiences. Pláneta’s sensory play workshops are designed to allow everyone to explore new sensory experiences in a fun and interactive way.
The workshops are especially suitable for young children who have not yet started kindergarten, together with their parents, grandparents, or other caregivers. We place emphasis on creating a cozy environment where children can explore the world through sensory stimulation at their own pace.
The session takes place in the library’s multi-purpose hall, Fiskabúrið. Free admission and everyone welcome!
About Pláneta:
Jorika and Siggi are enthusiastic parents who discovered the magic of sensory play shortly after the birth of their first child. They enjoyed it so much and saw the incredible benefits sensory play had on their daughter’s development that they felt compelled to share their experiences with other parents in Iceland. Through their workshops, Jorika and Siggi aim to help other parents discover the positive effects of sensory play on children’s development and allow their creativity to flourish.
Advertisement
Event Venue
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær, Iceland, Þverholt 2, 270 Mosfellsbær, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.








