Advertisement
Kammersveit Reykjavíkur heimsækir New York á síðustu tónleikum starfsársins þann 19. apríl næstkomandi. Á tónleikunum leikur Kammersveitin verk sem tengjast New York-borg á einn eða annan hátt. Á efnisskrá er m.a. eitt þekktasta verk Steve Reichs, Eight Lines sem nú heyrist á tónleikum í fyrsta skipti á Íslandi. Kammersveitin leikur einnig Octandre eftir Edgard Varèse og Quiet City eftir Aaron Copland en bæði þessi verk voru frumflutt í New York. Auk þess eru á efnisskrá verk eftir New York búana Jennifer Higdon og Philip Glass. Að endingu leikur Kammersveitin tvö af þekktustu verkum hins fjölhæfa listamanns Moondog, Stamping ground og Bird’s lament, í nýjum útsetningum fyrir kammersveit. Hljómsveitarstjóri er hinn norski Nils Erik Måseidvåg.New York, New York! í Norðurljósum Hörpu sunnudaginn 19. apríl kl. 16.
Advertisement
Event Venue
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











