Advertisement
Nýr jazztónn í bænum!Sænski trompetleikarinn Magnus Thorell er fluttur til Íslands! Hann hefur leikið með listamönnum og hljómsveitum á borð við Newtone, Magnus Lindgren, Blue House Jazz Orchestra, Lisa Nilsson, Karin Hammar og Roffe Wikström. Nú hefur hann sest að hér á landi og nýtur þess að kynnast íslenskri menningu – sundlaugunum, fiskinum og orku náttúrunnar.
Á daginn glímir hann við íslenskuna, en á kvöldin talar tónlistin sínu máli 🎶 Þar tengist hann frábærum tónlistarmönnum í Reykjavík í gegnum jazzinn.
Magnus sækir innblástur í hina klassísku Blue Note-hefð og uppáhalds trompetleikarar hans eru meðal annars Lee Morgan, Kenny Dorham, Miles Davis, Roy Hargrove og Lew Soloff. Á tónleikunum fáum við að heyra verk eftir þessa meistara – ásamt frumsömdum lögum eftir Magnus sjálfan.
Meðleikarar:
Magnús Trygvason Eliassen
Birgir Steinn Theódórsson
Ari Frank Inguson
Agnar Már Magnússon
Kvöld fyrir alla jazzunnendur – og þá sem vilja upplifa lifandi tónlist í sinni bestu mynd.
Advertisement
Event Venue
IÐNÓ, Vonarstræti 3, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











