Náttúruleikmynd

Sat Apr 11 2026 at 04:00 pm to 06:00 pm UTC+00:00

Óðinsgata 1, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

HAKK Gallery
Publisher/HostHAKK Gallery
N\u00e1tt\u00faruleikmynd
Advertisement
is
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á opnun sýningar Studio Brynjar & Veronika, Náttúruleikmynd í HAKK Gallery.
Á sýningunni er ljósi varpað á birtingarmynd náttúrunnar í samfélaginu, hvernig hún er í sífelldu sýnd okkur sem fjarlæg, draumkennd og römmuð sviðsmynd, en ekki sá flókni vefur lifandi og jarðrænna þátta þar sem maðurinn er aðeins einn þráður af mörgum.
Í Náttúruleikmynd feta hönnuðirnir ný skref í eigin nálgun þar sem húsgögn verða að leikmyndakenndum rýmisþáttum sem sækja form sin í óræða náttúru Íslands; grjót, hraun og fjalllendi.
Verkin staðsetja sig á mörkum húsgagna, leikmyndar og skúlptúrs og víkka þannig hefðbundinn skilning á húsgagnahönnun.
en
We warmly welcome you to the opening of Studio Brynjar & Veronika’s solo exhibition, Constructed Landscape, at HAKK Gallery.
The exhibition looks at how nature is often shown as distant and dreamlike, like a stage set, rather than as a complex system which humans are a part of.
In Constructed Landscape the designers take new steps in their design, where furniture becomes spatial elements, drawing their forms from the ambiguous nature of Iceland. In the exhibition, furniture, stage design, and sculpture come together.
Efniviðurinn
Alaskaösp er aðal efniviðurinn í verkum sýningarinnar. Hún er ein hraðvaxnasta trjátegund landsins og mikið nýtt í skógrækt. Öspin hefur fengið á sig slæmt orð í húsagörðum vegna hins sterka rótarkerfis sem oft er til vandræða en úti í náttúrunni dafnar hún vel og er ef til vill sú viðartegund sem býður upp á hvað fjölbreyttasta nýtingarmöguleika. Í Náttúruleikmynd fær öspin að njóta sín sem góður og nothæfur viður og fær með því ákveðna uppreisn æru.
Asparviðurinn í húsgögnunum á sýningunni er hitameðhöndlaður, en það er aðferð sem á rætur að rekja langt aftur í aldir þegar viður var kolaður til að verja hann fúa. Síðustu áratugi hefur hitameðhöndlun þróast áfram sem nútímaleg og umhverfisvæn aðferð til að auka styrk og endingu timburs án meðhöndlunar með mengandi eða óumhverfisvænum efnum.
Fyrir sýninguna voru tilraunir gerðar með hitameðhöndlun á ýmsum viðartegundum frá Skógræktarfélag Reykjavíkur í nánu samstarfi við Gústav Jóhannsson húsgagnasmið. Tilraunirnar hafa tekist vel og þrátt fyrir að vera á byrjunarstigi benda þær til þess að íslenskan við megi styrkja með þessari aðferð og nota við smíði húsgagna og innréttinga, og sem almennt byggingarefni.

The material
Western balsam poplar introduced to Iceland from Alaska is the primary material used in the exhibition. It is one of the fastest-growing tree species in Iceland and is widely used in forestry. Although it has gained a negative reputation in residential areas due to its strong root system which can cause problems it thrives in the wild. Moreover, it is a highly versatile type of wood with a wide range of potential uses. In the exhibition Constructed Landscape, the poplar is given the opportunity to shine as a valuable and practical material, reclaiming its reputation.
The wood used in the exhibition’s furniture has been heat-treated. This method goes back centuries, when wood was charred to protect it from decay. In recent decades, heat treatment has evolved into a modern and environmentally friendly technique that enhances the strength and durability of timber without the use of harmful or polluting chemicals.
In preparation for the exhibition, experiments were conducted on heat-treating various wood species from the Reykjavík Forestry, in close collaboration with furniture maker Gústav Jóhannsson. Early results are promising and suggest that Icelandic wood can be stabilized and used for furniture, interiors and construction.
Advertisement

Event Venue

Óðinsgata 1, 101 Reykjavík, Iceland, Óðinsgata 1, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Anna S. Bjarnad\u00f3ttir: Hreyfing \u00ed kyrr\u00f0
Sat, 11 Apr at 02:00 pm Anna S. Bjarnadóttir: Hreyfing í kyrrð

Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavík, Iceland

Krakkakl\u00fabburinn Krummi \u2013 S\u00e6skr\u00edmslab\u00fari\u00f0 \ud83e\udee7
Sat, 11 Apr at 02:00 pm Krakkaklúbburinn Krummi – Sæskrímslabúrið 🫧

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland

Vort\u00f3nleikar L\u00fa\u00f0rasveitar Verkal\u00fd\u00f0sins 2026
Sat, 11 Apr at 02:00 pm Vortónleikar Lúðrasveitar Verkalýðsins 2026

Ráðhús Reykjavíkur

Vor\u00feing Vi\u00f0reisnar
Sat, 11 Apr at 02:00 pm Vorþing Viðreisnar

Fantasía, vinnustofa Kjarvals Austurstræti 10a

T\u00f3nleikar \u00ed M\u00e1li og menningu
Sat, 11 Apr at 05:00 pm Tónleikar í Máli og menningu

Mál og Menning

\u00de\u00f3rd\u00eds Erla Zo\u00ebga | Domestic Sci-fi
Sat, 11 Apr at 05:00 pm Þórdís Erla Zoëga | Domestic Sci-fi

Smiðjustígur 10 / Klapparstígur 16, 101 Reykjavík, Iceland

Big Shark og The Room - me\u00f0 Greg Sestero!
Sat, 11 Apr at 06:00 pm Big Shark og The Room - með Greg Sestero!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

\u00c1rsh\u00e1t\u00ed\u00f0\/Annual Gala
Sat, 11 Apr at 06:30 pm Árshátíð/Annual Gala

Plantan Bistro

Sagnavaka
Sat, 11 Apr at 09:00 pm Sagnavaka

Laugavegur 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland

House of Revolution x Belonging? Presents: THE UPRISING!
Sat, 11 Apr at 09:00 pm House of Revolution x Belonging? Presents: THE UPRISING!

Þjóðleikhúsið

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events