Advertisement
NATÓ ÞÁ OG NÚ – ÍSLAND OG ATLANTSHAFSBANDALAGIÐEinstakur bíóviðburður laugardaginn 11. apríl klukkan 15.
Salur 1 í Bíó Paradís. Frítt er inn á viðburðinn.
DAGSKRÁ
15:00 – Frumsýning á heimildarmyndinni 1949
15:30 – Pallborð um veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu
HEIMILDARMYNDIN 1949
Heimildarmyndin fjallar um óeirðirnar á Austurvelli 30. mars 1949 þegar þingsályktunartillaga um stofnaðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu var samþykkt á Alþingi. Mikill fjöldi flykktist á Austurvöll og að endingu kom til mikilla átaka á milli lögreglu og mótmælenda.
Heimildarmyndin byggir á stórkostlegu myndefni af mótmælunum sem varðveitt er á Kvikmyndasafni Íslands. Hún er rúmar 20 mínútur að lengd.
1949 er eftir Guðmund Atla Hlynsson. Heimildarmyndin er jafnframt meistaraverkefni hans í menningarmiðlun við Háskóla Íslands og samstarfsverkefni með Kvikmyndasafni Íslands.
Guðmundur Atli verður með stutta kynningu fyrir frumsýninguna.
PALLBORÐSUMRÆÐUR
Eftir frumsýninguna verða pallborðsumræður um aðdraganda og eftirmál aðildar Íslands að Atlantshafsbandalaginu, áhrif þess á íslenskt samfélag og stöðu varnarbandalagsins á breytingatímum.
Þátttakendur í pallborðinu eru með helstu sérfræðingum þjóðarinnar í sögu og mikilvægi Atlantshafsbandalagsins. Það eru Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og utanríkismálum, Rósa Magnúsdóttir sagnfræðingur og Stefán Pálsson sagnfræðingur.
Sjáumst í bíó!
Advertisement
Event Venue
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











