Advertisement
Málþing um íslenska refinn verður haldið þriðjudaginn 9. júní 2026 kl. 13 í Eddu, húsi íslenskunnar. Fundinum verður jafnframt streymt á netinu.Á málþinginu verður fjallað um fjölbreytta þætti í líffræði og vöktun íslenska refastofnsins. Meðal annars verður rætt um sérstöðu stofnsins, vöktun hans, erfðafræði og svipgerðir, breytingar á fæðuvali með hlýnandi loftslagi, afræningjatengsl og nýtt stofnlíkan. Einnig verður fjallað um refaveiðar og veiðigögn, sem og þátttöku refaskyttna í vöktun. Að loknum fyrirlestrum fara fram pallborðsumræður.
Fundarstjóri er Sunna Björk Ragnarsdóttir, sviðsstjóri hjá Náttúrufræðistofnun.
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Tengill á streymi: https://events.teams.microsoft.com/event/7e48a1ec-374b-4bc4-a508-cb213d641549@764a306d-0a68-45ad-9f07-6f1804447cd4
Advertisement
Event Venue
Arngrímsgata 5, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






