Advertisement
Elsku bestu þið öll sem voruð að brasa í Lækjargötunni saman þarna um árið ❤️ Einhver fékk hugmynd út frá einhverjum reikningi um að við værum jafngömul árinu sem við fæddumst á. Það er risatilefni til að fagna því og líka þeirri staðreynd að vera uppistandandi, þekkjast enn í sjón og geta tjáð okkur sæmilega og haldið uppi samræðum 💥☀⭐ Nefndin hefur fundað stíft og nú er niðurstaðan komin: Við ætlum að hittast í Petersen svítunni í fordrykk klukkan 17:00. Síðan er standandi/sitjandi matur, allt voðalega kasjúal smart, og Sigga ætlar að tala latínu allt kvöldið. Nú verðum við að fá að vita EIGI SÍÐAR EN FÖSTUDAGINN 22.5. hverjir ætla að vera með okkur svo hægt sé að plana giggið. Og auðvitað eru makar velkomnir - framsendið viðburðinn endilega á þau - ef þau hafa áhuga 🧡. Já, verðið er kr. 9.800 á haus fyrir matinn og salinn, drykkir greiddir sér. Flestir lífeyrissjóðir taka þátt í slíkum kostnaði fyrir skjólstæðinga sína, enda frestar þetta töku lífeyris. Hlökkum til!
Advertisement
Event Venue
Petersen svítan, Ingólfsstræti 2a 3rd floor,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










