Advertisement
Heilsan okkar: Ópíóíðar og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagiLokafundur vormisseris í fundaröðinni Heilsan okkar 2026 fer fram í Veröld, húsi Vigdísar 29. maí kl. 11:30 til 13:00
Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir, lektor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum
Fundarstjóri: Martin Ingi Sigurðsson, prófessor við Læknadeild HÍ
Hlekkur á beint streymi frá fundinum: Auglýst síðar
Dagskrá:
Sigríður Zoëga, dósent við Hjúkrunar og ljósmóðurfræðadeild Háskóla Íslands og deildarstjóri við Landspítala – Verkir og meginþættir í meðferð verkja
Freyja Jónsdóttir, dósent við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands – Flokkar verkjalyfja, aukaverkanir og langvinn notkun
Helga Zoega, prófessor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum Háskóla Íslands – Notkun á ópíóðum á Íslandi og samanburður við önnur lönd
Adam Bauer, réttarefnafræðingur á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands og doktorsnemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands - Ópíóíðar og ketamín á höfuðborgarsvæðinu: Greining á lyfjaávísunum, fráveitugögnum og fölsuðum lyfjum
Anna Bryndís Blöndal, dósent við Lyfjafræðideild og forstöðumaður Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu – Ábyrg notkun verkjalyfja – niðurtröppun og endurskoðun lyfjameðferðar
Pallborðsumræður í lokin
Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.
Advertisement
Event Venue
Veröld - Hús Vigdísar, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










