Advertisement
Model NATO-ráðstefna verður haldin á Alþingi þann 2. október 2026 og er ætluð ungu fólki á aldrinum 18 til 35 ára sem hefur áhuga á alþjóðamálum, stjórnmálum, lögfræði, heimspeki, löggæslu, varnarmálum eða opinberri þjónustu.Opnað hefur verið umsóknir.
Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2026.
Sjá skráningarform hér: https://forms.office.com/e/vB3gpaczU5
-----------
Ráðstefnan er skipulögð af utanríkisráðuneytinu í samstarfi við breska sendiráðið í Reykjavík, Alþingi, YATA Ísland og Varðberg. Háskólinn í Birmingham sér um fundarstjórn.
Á ráðstefnunni taka þátttakendur að sér hlutverk fulltrúa aðildarríkja NATO og vinna saman að því að bregðast við sviðsettu alþjóðlegu neyðarástandi. Sviðsmyndin þróast yfir daginn og krefst þess að þátttakendur beiti hraðri hugsun, samningatækni, diplómatískri færni og getu til að vinna undir álagi.
Markmiðið er að veita þátttakendum innsýn í ákvarðanatöku innan Atlantshafsbandalagsins og hvernig aðildarríki þurfa að samræma ólíka hagsmuni, sjónarmið og áherslur þegar alþjóðlegt öryggi er í húfi.
Model NATO er því einstakt tækifæri fyrir ungt fólk til að kynnast starfsemi alþjóðastofnunar sem hefur mikil áhrif á öryggi og stjórnmál í Evrópu og á Norður-Atlantshafssvæðinu. Þátttakendur fá jafnframt tækifæri til að efla færni sína í ræðumennsku, teymisvinnu, stefnumótun, greiningu og samningaviðræðum.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Þátttaka er þátttakendum að kostnaðarlausu og geta 18 til 35 ára sótt um.
Verði aðsókn mikil kann íslenskum ríkisborgurum að verða veittur forgangur.
Þau sem valin verða til þátttöku fá tilkynningu í lok ágúst. Í kjölfarið verður þátttakendum úthlutað ríki og teymi, auk þess sem þau fá nánari upplýsingar um dagskrá og undirbúning um tveimur vikum fyrir ráðstefnuna. Gert er ráð fyrir að ráðstefnan standi yfir meiripart dags. Þá mun þátttakendum standa til boða að taka þátt í sérstökum fræðsludegi svo og skoðunarferð á öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli í kringum ráðstefnuna í haust.
Advertisement
Event Venue
Alþingi, Kirkjustræti 14, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.





