Advertisement
Miðfellshlaupið 2026 - 30. maí kl. 11:00Miðfellshlaupið 2026 er til styrktar Vettvangsliðum Bf. Eyvindar en hópurinn þjónar uppsveitum Árnessýslu. Hópurinn er fyrsta útkall þegar þörf er á sjúkrabíl vegna bráðatilfella (slys, hjartaáfall, hjartastopp, bráðaofnæmi o.fl.). Vegna nálægðar í uppsveitunum er Vettvangshjálparhópurinn kominn á vettvang um 10-20 mín. áður en sjúkrabíll frá Selfossi kemur.
Boðið verður upp á þessar vegalengdir:
- 1.2 km (99% malbik)
- 3 km. (ganga/skokk)
- 5 km. (ganga/skokk/hlaup, byrjar í Miðfellshverfinu, minibus)
- 10 km. (skokk/hlaup, byrjar við íþróttahúsið)
Hlaupið byrjar kl. 11. Hlaupaleiðin liggur milli íþróttahúss á Flúðum og Miðfellshverfisins og fylgir reiðvegi og malarvegi meðfram Miðfelli að vestanverðu. Hér má sjá myndband af leiðinni: https://www.relive.cc/view/v1vjD3V5ZJ6
Það verða ekki rásnúmer eða tímataka en það verður markklukka þar sem þátttakendur geta séð tíma sinn þegar í mark er komið.
Veitingar verða í boði og dregið verður úr nöfnum þátttakenda sem fá glaðning.
Þátttökugjald í Miðfellshlaupinu er ókeypis fyrir 16 ára og yngri. Gjaldið fyrir aðra er 3.000 kr. fyrir allar vegalengdir og ef þú vilt um leið styrkja Vettvangsliðahópinn enn frekar þá getur þú valið milli 4 valmöguleika. Skráningin er opin allt fram að hlaupadegi og einnig um morguninn rétt fyrir hlaup. Greiðsla felst í millifærslu inn á reikning Miðfellshlaupsins við skráningu sem er 0325-26-000737 kt. 640169-2309 (Hrunamannahreppur).
Hér er hlekkur á skráningu: https://forms.gle/VqxU3mx8yLdSmvgr8
Starf vettvangshjálparhópsins:
Björgunarfélagið Eyvindur hefur frá árinu 2011 verið með starfandi vettvangsliðahóp sem sinnir neyðarviðbragði í uppsveitum Árnessýslu. Samningur er á milli Bf.Eyvindar og HSU og felst í að HSU geti óskað eftir aðstoð hópsins þegar þörf er á aðstoð og bregðast þarf við í alvarlegum veikindum eða slysum í uppsveitum Árnessýslu. Árið 2011, þegar vettvangshjálparhópurinn var stofnaður voru 6 menntaðir einstaklingar í vettvangshjálp í óbyggðum (WFR). Með árunum hefur svo fjölgað í hópnum og eru auk WFR menntaðra, hjúkrunarfræðingur, sjúkraliðar og sjúkraflutningafólk í hópnum. Í dag samanstendur hann af alls 15 manns. Nauðsynlegt er að hafa góða endurmenntun fyrir hópinn og er vettvangshjálparhópurinn duglegur að ná sér í meiri þekkingu með því að sækja námskeið og fyrirlestra og einnig koma annað slagið sjúkraflutningamenn frá HSU og fara yfir ýmislegt sem er talið er gott að skerpa á.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest þann 30. maí, hreyfum okkur saman og eigum góða stund í góðum félagsskap og styrkjum gott málefni í leiðinni. Allt skiptir þetta máli :-)
Kærar kveðjur,
Arnfríður og Kolbrún
P.s. Endilega sendið á okkur línu eða sláið á þráðinn ef eitthvað er óljóst:
[email protected] - sími: 8960430
[email protected] - sími: 6995178
Advertisement
Event Venue
Flúðir, 845 Hrunamannahreppur, Ísland, Selfoss, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.







