Margrét Eir á Múlanum / Söngleikja jazz

Wed Mar 25 2026 at 08:00 pm to 09:30 pm UTC+00:00

Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

Mulinn Jazz club
Publisher/HostMulinn Jazz club
Margr\u00e9t Eir \u00e1 M\u00falanum \/ S\u00f6ngleikja jazz
Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með vordadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 25. mars kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram stórsöngkonan Margrét Eir ásamt tríói sínu. Hún hefur í rúma þrjá áratugi heillað landsmenn með sinni kraftmiklu rödd, ótrúlegu hæfileikum og óneitanlegum sjarma en hún hefur fyrir löngu skipað sér sess sem ein okkar færasta og ástsælasta söngkona. Á tónleikunum kemur hún fram ásamt tríói sínu og flytur bland af þekktum gömlum og nýjum jazzlögum með nýrri og lágstemmdri nálgun en öll lögin eiga það sameiginlegt að vera úr söngleikjum. Söngleikirnar spanna nokkra áratugi og meðal höfunda eru Stephen Sondheim, George og Ira Gerswhin og Cole Porter. Margrét hefur sérþekkingu á söngleikjatónlist og leiðir áhorfendur í gegnum uppruna laganna, karakterana og sögurnar á bak við þau og söngleikinn sem þau eru sótt í. Á viðamiklum ferli sínum hefur Margrét starfað með fremstu tónlistarmönnum landsins, sungið inn á fjölmargar plötur og komið fram á tónleikum, m.a. reglulega í Salnum, Hofi og í Hörpu. Hún hefur gefið út fjórar sóló plötur og þrjár með hljómsveitinni Thin Jim and the Castaways. Þá hefur hún nokkrum sinnum verið tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna. Ásamt Margréti koma fram gítarleikarinn Andrés Þór Gunnlaugsson og Þorgrímur Jónsson sem leikur á bassa.
Margrét Eir hefur starfað á öllum stærstu leiksviðum landsins og hefur þar leikið og sungið í sumum af vinsælustu söngleikjum sem settir hafa verið á svið á Íslandi, þ.á.m. í sýningunum Oliver, Hárinu, Mary Poppins, Vesalingunum og Chicago, en hún hlaut Grímutilnefningu fyrir hlutverk sitt í þeirri síðastnefndu. Þessa stundina fer Margrét með hlutverk í stórkostlegri uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur á Moulin Rouge.
Margrét Eir - Theater Jazz
Grand singer Margrét Eir has in over three decades captivated listeners with her powerful voice, remarkable talent, and undeniable charm and she has long since secured her place as one of Iceland's most accomplished and beloved singers. Her trio with guitarist Andrés Þór and bassist Þorgrímur Jónsson will perform a mix of well-known classic and modern jazz pieces, presented with a fresh and understated approach. All of the songs share one thing in common: they originate from musical theatre. The musicals span several decades, with composers including Stephen Sondheim, George and Ira Gershwin, and Cole Porter. Margrét brings special expertise in musical theatre music and guides the audience through the origins of the songs, the characters, and the stories behind each song and musical.
In her extensive career, Margrét has worked with the country’s leading musicians, recorded vocals on numerous albums and performed in concerts, including regular events in venues such as Salurinn, Hof, and Harpa. She has released four solo albums and three with the band Thin Jim and the Castaways, and on several occasions, she has been nominated for the Icelandic Music Awards.
Margrét Eir has performed as an actress and singer on all of the country’s major stages, in some of the most popular musical theatre productions staged in Iceland, including Oliver!, Hair, Mary Poppins, Les Misérables and Chicago, for which she received a Gríma Award nomination. Most recently, Margrét is performing in the Reykjavík Theater Company’s production of Moulin Rouge.
Margrét Eir, vocals
Andrés Þór, guitar
Þorgrímur Jónsson, bass
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 4900.
Spennandi vordagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í lok maí. Múlinn er að hefja sitt 29. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 4900 og 3600 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu
Advertisement

Event Venue

Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

AndR\u00fdmi - Breathwork b\u00fd\u00f0ur upp \u00e1 Umbreytandi \u00d6ndunarvinnu
Tue, 24 Mar at 08:00 pm AndRými - Breathwork býður upp á Umbreytandi Öndunarvinnu

Samkennd - Heilsusetur, Tunguhálsi 19, 2 hæð, 110 Reykjavík

India - Iceland Relations in a Changing World
Wed, 25 Mar at 08:30 am India - Iceland Relations in a Changing World

Norræna húsið The Nordic House

N\u00e1mskei\u00f0ar\u00f6\u00f0 \u00c6V: Hinsegin fr\u00e6\u00f0sla
Wed, 25 Mar at 05:30 pm Námskeiðaröð ÆV: Hinsegin fræðsla

Hraunbær 123, 110 Reykjavík, Iceland

Fimmtudagurinn Langi \/ Good Thursday
Thu, 26 Mar at 10:00 am Fimmtudagurinn Langi / Good Thursday

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland

Menntab\u00fa\u00f0ir \u00ed S\u00f6gu: L\u00e6si, t\u00e6kni og skapandi starf
Thu, 26 Mar at 02:00 pm Menntabúðir í Sögu: Læsi, tækni og skapandi starf

Menntavísindasvið HÍ

Sprettstefnum\u00f3t \u00e1 Stockfish - T\u00f3nlist \u00ed kvikmyndum
Thu, 26 Mar at 05:00 pm Sprettstefnumót á Stockfish - Tónlist í kvikmyndum

Hafnarstræti 6, 101 Reykjavík, Iceland

KK | 70 \u00e1ra
Thu, 26 Mar at 08:00 pm KK | 70 ára

Háskólabíó

A\u00f0alfundur CPf\u00e9lagsins 2026
Thu, 26 Mar at 08:00 pm Aðalfundur CPfélagsins 2026

Háaleitisbraut 13 , 108 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events