Advertisement
Heilbrigðishópur ÖBÍ réttindasamtaka og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands standa fyrir málþinginu „Veik og þreytt dag eftir dag – konur sem lifa við langvinn veikindi“. Talsvert hefur verið rætt um kvenheilsu og langvinn veikindi kvenna að undanförnu en lítið um aðgerðir. Á þessum viðburði munu hagsmunasamtök þeirra kvenna og kvára sem lifa við langvinn veikindi segja frá reynslu sinni sem og mikilvægum aðgerðum til að bæta stuðning og þjónustu við þennan hóp.
Á dagskrá eru stutt erindi frá ólíkum samtökum og að þeim loknum pallborðsumræður með spurningum úr sal, þar sem fjallað verður um reynslu, áskoranir og stöðu kvenna.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í gegnum skráningarform hér að neðan og taka fram hvort óskað sé eftir rit- eða táknmálstúlkun. Hvídarhorn verður fyrir utan fundarsal fyrir þau sem þurfa. Hægt er að velja að fylgjast með í gegn um streymi í skráningarformi.
https://www.obi.is/skraning-a-malthingid-veik-og-threytt-dag-eftir-dag/
DAGSKRÁ
Kl. 13.00-16.00 með 45 mín kaffihléi
13.00: Fundastjóri Marta Jóns Hjördísardóttir talskona sjúklinga á Landspítala opnar
13.05: Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ
13.10: Telma Sigtryggsdóttir - formaður heilbrigðishóps ÖBÍ
13.20: Nanna Hlín Halldórsdóttir
13.30: Hugrún Vignisdóttir - Samtök um POTS á Íslandi
13.40: Freyja Imsland - ME félag Íslands
13.50: Sigríður Elín Ásgeirsdóttir - Ský – Félag fólks með Post Covid
14.00 Hrönn Stefánsdóttir - Gigtarfélag Íslands
14.10 Kaffihlé
15.00 Valgerður Þórdís Snæbjarnardóttir - Endósamtökin
15.10 Elísa Ósk Línadóttir - PCOS samtök Íslands
15.20 Anna Sigrún og Steinunn Radha - Tabú - femínísk fötlunarhreyfing
15.30 Pallborð með spurningum úr sal
Advertisement
Event Venue
Reykjavik, Grand Hotel, Tesla, Sigtún 38, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










