Advertisement
Festa í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, UN Women á Íslandi, Unicef, Félag Sameinuðu þjóðanna og UN Global Compact býður til hliðarviðburðar í tengslum við Janúarráðstefnu Festu 2025.💕 Viðburðurinn er opinn öllum og er haldinn í viðburðarsal Arion banka, Borgartúni 19 og hefst með opnunarávarpi utanríkisráðherra.
Virðiskeðjur nútímafyrirtækja hafa snertifleti við ótal einstaklinga um allan heim. Við vitum að víða er pottur brotinn og arðsöm framleiðsla byggir oft á bágum mannréttindum eða jafnvel barnaþrælkun.
Það er því mikil vinna framundan við að tryggja að í innlendum sem alþjóðlegum virðiskeðjum viðgangist ekki brot á eðlilegum réttindum heldur þvert á móti sé unnið að því að bæta aðstæður og tækifæri starfsfólks.
Á viðburðinum fáum við að heyra frá sérfræðingum, fyrirtækjum og ungmennum sem öll hafa ólíka innsýn á stöðu mannréttinda í virðiskeðjum. Þá er þetta einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki til að kynna sér Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífsins.
☕☕ Boðið verður upp á léttar veitingar frá 9:30.
🖋️ Skráning er nauðsynleg
💡 Allar nánari upplýsingar og skráning: https://www.sjalfbaer.is/vidburdir/januar-hlidar
DAGSKRÁ: 💫
💫 Opnunarávarp frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra
💫 Dr. Mikael Alan Mikaelssyni sérfræðingur á sviði loftslagsstefnumótunar hjá Stockholm Environment Institute (SEI)
💫 Guðný Camilla Aradóttir, samskipta- og sjálfbærnistjóri IKEA – Hvernig hefur IKEA unnið með sína virðiskeðju þegar kemur að því að tryggja mannréttindi allra sem að henni koma.
💫 Erindi frá tveimur fyrirtækjum sem hafa hlotið styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins
📍VAXA Technology og Warm heart
💫 Kynning á nýjum vegvísi Festu um félagslega sjálfbærni
💫 Pallborð þar sem við heyrum frá ungu fólki með fjölbreytta reynslu og bakgrunn.
📍Sumitru Basnet frá Nepal, framhaldsskólanemi og fyrrverandi fórnarlamb barnaþrælkunar
📍Hadia Rahman frá Afganistan, nemi við Keili
📍Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir, ungmennafulltrúi Íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á sviði mannréttinda
💫 Panelstjóri: Pétur Hjörvar Þorkelsson verkefnastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
💫 Fundarstjóri verður Pia Hansson forstöðumaður Alþjóðamálstofnunar Háskóla Íslands
💫 Arion banki er styrktaraðili viðburðarins💫
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Arion Banki, Borgartún 17, 105 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland