Línuleg saxskrá

Sun, 24 May, 2026 at 08:00 pm UTC+00:00

Vonarstræti 3, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

I\u00d0N\u00d3
Publisher/HostIÐNÓ
L\u00ednuleg saxskr\u00e1
Advertisement
Línuleg saxskrá: Saxófónsveit Tuma Torfasonar leikur þjóðþekkt útvarps- og sjónvarpsstef
Trompetleikarinn Tumi Torfason bregður á leik í Iðnó með einstökum tónleikum. Bæði efnisskráin og hljóðfæraskipanin koma úr óvæntri átt en tónleikagestir mega eiga von á þeysireið um kunnulegar slóðir í okkar sameiginlegu þjóðarvitund.
Tónlistin er landsmönnum öllum góðkunn en um er að ræða stef sem hafa verið samofin íslenskum hversdegi um árabil, nánar tiltekið þá lagabúta sem ramma inn línulega dagskrá Ríkisútvarpsins, bæði í sjónvarpi og útvarpi. Ekki beinlínis lög. Heldur stef. Hér gefst hlustendum til dæmis tækifæri til að heyra trompetstefið úr Silfrinu og saxófónstefið úr Landanum í lifandi flutningi. Aldrei að vita nema leikmenn gæði fleiri stef nýju lífi svo sem opnunarstef úr dagskrárliðum eins og morgunleikfiminni, veðurfréttum, smáauglýsingum að ógleymdum dánarfregnum og jarðarförum. Efnið verður tekið fyrir í lifandi útsetningum svo stefin munu bæði slá á nostalgíska strengi og bregða sér í nýjan búning svo þau verði jafnvel óþekkjanleg.
Hljómsveit kvöldsins er ekki af verri endanum. Tumi hefur mannað afar óvenjulega besetningu hljóðfæra fyrir þetta sérstaka tilefni en glöggir tónleikagestir gætu tekið eftir að hér er fullkominn skortur á hljómahljóðfærum og algjör ofgnótt saxófóna. Það mætti halda að tríó Tuma Torfasonar, með þeim Birgi Steini Theódórssyni á kontrabassa og Magnúsi Trygvasyni Eliassen á trommusett, hafi fengið til liðs við sig heila saxófónseksjón eins og fyrirfinnast í hefðbundnum stórsveitum, en svo er ekki! Hér er á ferðinni afar óvenjuleg saxófónseksjón því hún inniheldur hinn sjaldgæfa bassasaxófón sem Haukur Gröndal mundar af sinni einstöku kostgæfni. Eftir því sem ofar dregur í tónhæð minnka jafnframt hljóðfærin en á þau spila þeir Björgvin Ragnar Hjálmarsson á baritón, Tumi Árnason á tenór, Sölvi Kolbeinsson á altó og Óskar Guðjónsson á sópran. Ef vel liggur á gæti sá síðastnefndi leikið áðurnefnt Landastef eins og hann gerði svo listavel um árið.
Kvöldstund í Iðnó við Reykjavíkurtjörn sem hlustendur Rásar 1 og 2, áhorfendur RÚV og unnendur saxófónsins ættu ekki að láta framhjá sér fara!
Tumi Torfason : trompet
Óskar Guðjónsson : sópransaxófónn
Sölvi Kolbeinsson : altósaxófónn
Tumi Árnason : tenórsaxófónn
Björgvin Ragnar Hjálmarsson : baritónsaxófónn
Haukur Gröndal : bassasaxófónn
Birgir Steinn Theodórsson : kontrabassi
Magnús Trygvason Eliassen : trommur
Advertisement

Event Venue

Vonarstræti 3, 101 Reykjavík, Iceland, Vonarstræti 3, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Fj\u00f6lskyldudagskr\u00e1 H\u00f6rpu: Heimst\u00f3nlist \u00ed H\u00f6rpu: Mi\u00f0- og Austur-Evr\u00f3pa
Sun, 24 May at 01:00 pm Fjölskyldudagskrá Hörpu: Heimstónlist í Hörpu: Mið- og Austur-Evrópa

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

po\u017cegnanie proboszcza
Sun, 24 May at 04:00 pm pożegnanie proboszcza

Akranes

Spennandi n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed ma\u00ed 2026
Tue, 26 May at 01:00 pm Spennandi námskeið í maí 2026

Ofanleiti 2, 103 Reykjavík, Iceland

Komdu \u00ed heims\u00f3kn! Opi\u00f0 h\u00fas \u00ed H\u00e1sk\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk
Tue, 26 May at 03:00 pm Komdu í heimsókn! Opið hús í Háskólanum í Reykjavík

Menntavegur 1

Rythm\u00edsk s\u00e1tt- Korda Samf\u00f3n\u00eda
Tue, 26 May at 07:30 pm Rythmísk sátt- Korda Samfónía

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Kyrkingartak: Ein gr\u00f3fasta birtingarmynd kynbundins ofbeldis
Wed, 27 May at 08:30 am Kyrkingartak: Ein grófasta birtingarmynd kynbundins ofbeldis

Menntavegur 1, 102 Reykjavík, Iceland

T\u00f3nheilunar m\u00fdkt og mildi  inn \u00ed sumari\u00f0 me\u00f0 Berglindi og Arnari
Wed, 27 May at 05:00 pm Tónheilunar mýkt og mildi inn í sumarið með Berglindi og Arnari

Bolholt 4. 4 hæð, 105 Reykjavík Reykjavík, Iceland

Databeers Reykjavik #15
Wed, 27 May at 05:30 pm Databeers Reykjavik #15

Ölgerðin Egill Skallagrímsson

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events