Advertisement
Verið hjartanlega velkomin á Lou Reed Drones – einstaka hljóðinnsetningu í porti Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Viðburðurinn er haldinn í tilefni Íslandsheimsóknar Laurie Anderson sem tekur þátt í flutningi verksins.
Verkið, sem hefur farið sigurför um heiminn, býður upp á djúpa og umlykjandi upplifun þar sem gítarar úr safni Lou Reed magna upp kraftmikinn hljóm sem umbreytist með hverju skrefi.
Verkið byggir á gíturum úr safni lífsförunautar Laurie Anderson, bandaríska tónlistarmannsins Lou Reed, sem lést árið 2013. Hann var hvað þekktastur sem stofnandi og aðalsöngvari hljómsveitarinnar The Velvet Underground. Hljóðfærunum er stillt upp á þann hátt að kraftmikill dynur og ómar fylla rýmið af hundruðum hljóma sem flæða saman í tilfinningaþrunginn hljóðheim. Hljóðfærunum er stillt upp á þann hátt að kraftmikill dynur og ómar fylla rýmið af hundruðum hljóma sem flæða saman í tilfinningaþrunginn hljóðheim.
Viðburðurinn er haldinn af Smekkleysu og Mengi en hýstur af Listasafni Reykjavíkur í tengslum við yfirlitssýninguna Steina: Tímaflakk. Hann er hluti af þremur viðburðum sem marka Íslandsför Laurie Anderson í byrjun árs 2026:
• Republic of Love tónleikar í Hörpu sama dag.
• Þrjár víólur í Listasafni Íslands daginn eftir 8.jan.
Listamenn sem koma fram:
- Laurie Anderson
- Skúli Sverrisson
- Kjartan sveinsson
- Davíð Þór Jónsson
- Stewart Hurwood
Miði á safnið gildir.
//
Welcome to Lou Reed Drones – a unique sound installation in the Port of the Reykjavík Art Museum – Hafnarhús.
The event is organized by Smekkleysa & Mengi and hosted by the Reykjavík Art Museum in conjunction with the retrospective exhibition Steina: Playback
The work is based on guitars from the collection of Laurie's life partner, American musician Lou Reed, who died in 2013. He was best known as the founder and lead singer of the band The Velvet Underground. The instruments are arranged in such a way that powerful beats and resonances fill the space with hundreds of chords that flow together in an emotional soundscape. The instruments are arranged in such a way that powerful beats and resonances fill the space with hundreds of chords that flow together in an emotional soundscape.
The event is organized by Smekkleysa & Mengi and hosted by the Reykjavík Art Museum in connection with the retrospective exhibition Steina: Tímaflakk. It is part of three events marking Laurie Anderson's visit to Iceland in early 2026:
• Republic of Love concert at Harpa that same evening
• Three Violas at the National Gallery of Iceland the following weekend
Entrance with a museum ticket
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Tryggvagata 17, 101 Reykjavík, Iceland, Tryggvagata 17, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










