Advertisement
🌲 Verið hjartanlega velkomin á smástundarsýningu nemenda í landslagsarkitektúr frá Landbúnaðarháskólanum🌲💛Sýningin fer fram í Gestastofu Elliðaárstöðvar frá 1. júlí til 18. ágúst og er opið á virkum dögum frá 8:30 - 16:30
🌿Á sýningunni má sjá hugmyndir nemenda um hvernig Elliðaárdalurinn gæti þróast til framtíðar. Verkefnið er hluti af námskeiði í Landslagsgreiningu þar sem lögð er áhersla á að nemendur byggi hönnunarvinnu sína á vandaðri greiningu landslags og umhverfis.
🌎Hver og einn nemandi mótaði sína eigin framtíðarsýn fyrir dalinn og vann hönnunartillögu sem dregur fram sérkenni svæðisins, bregst við áskorunum og opnar fyrir möguleika í nýtingu, vernd og upplifun.
🐦Nemendur settu sér hönnunarþema, völdu stað innan dalsins og útfærðu hugmyndir sínar bæði í stórum og smáum mælikvarða – allt frá skipulagi stígakerfa til nánari hönnunar dvalarsvæða,
fuglaskoðunarpalla, upplifunarleiða og fleira.
🧠Með verkefninu er ætlunin að þjálfa framtíðarlandslagsarkitekta í að hugsa skapandi og röklega um samspil náttúru og mannlífs og að segja skýra og sannfærandi sögu með landslagi.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Rafstöðvarvegur 6, 110 Reykjavík, Iceland, Rafstöðvarvegur 6, 110 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland