Ingibjörg Turchi tríó

Sun, 17 Aug, 2025 at 08:00 pm UTC+00:00

IÐNÓ | Reykjavík

I\u00d0N\u00d3
Publisher/HostIÐNÓ
Ingibj\u00f6rg Turchi tr\u00ed\u00f3
Advertisement
Þann 17. ágúst nk. mun bassaleikarinn og tónskáldið Ingibjörg Turchi koma fram á jazzkvöldi í Iðnó. Með henni leika Tumi Árnason á tenórsaxófón og Magnús Trygvason Eliassen á slagverk. Þau munu leika efni af plötum Ingibjargar, Meliae og Stropha, ásamt nýju í efni í bland við spuna. Bassaleikarinn og tónskáldið Ingibjörg Elsa Turchi (1988) hefur verið afar sýnileg í íslensku tónlistarlífi sl.ár og hefur komið fram með mörgum af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar, svo sem Emilíönu Torrini, Bubba Morthens, Stuðmönnum og Teiti Magnússyni, bæði á tónleikum og upptökum. Meðal fleiri samstarfsaðila má nefna Röggu Gísla, Björgu Brjánsdóttur, Hróðmar Sigurðsson og Soffíu Björgu, svo fátt eitt sé nefnt. Hún hefur einnig samið verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og Stórsveit Reykjavíkur og tekið þátt í verki Ragnars Kjartanssonar, Kona í e-moll, í Listasafni Reykjavíkur. Hún hefur leikið á bassa í hljómsveitum í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og verið í húsbandi Idol-stjörnuleitar á Stöð 2.
Ingibjörg gaf út stuttskífuna Wood/Work árið 2017 þar sem rafbassinn var í aðalhlutverki. Í júlí 2020 gaf Ingibjörg svo út sína fyrstu plötu í fullri lengd, Meliae. Hlaut platan titilinn Plata ársins
í Djassflokki á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021 og tilnefningu til Hyundai Nordic Music Prize sama ár. Árið 2023 kom út hennar seinni plata í fullri lengd, Stropha. Hún fékk 4 stjörnur hjá Heimildinni, var á flestum árslistum 2023 og fékk tilnefningu á íslensku tónlistarverðlaununum í flokknum Upptökustjórn ársins.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

IÐNÓ, Vonarstræti 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Sharing is Caring:

More Events in Reykjavík

Gabriel Gold: White Raven Dreaming - N\u00fd dagsetning \/ New concert date
Sat, 16 Aug at 08:00 pm Gabriel Gold: White Raven Dreaming - Ný dagsetning / New concert date

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland

\u00datg\u00e1fut\u00f3nleikapart\u00fd
Sat, 16 Aug at 09:00 pm Útgáfutónleikapartý

Bird RVK

Hausar: Return to Paloma - Drum & Bass
Sat, 16 Aug at 11:00 pm Hausar: Return to Paloma - Drum & Bass

Paloma

CONSCIOUS CONNECTED BREATHWORK JOURNEY
Sun, 17 Aug at 03:00 pm CONSCIOUS CONNECTED BREATHWORK JOURNEY

Leiðin heim - Holistic healing center

Key Habits Workshop \u2013 Personal Strategy
Mon, 18 Aug at 12:00 am Key Habits Workshop – Personal Strategy

Skeifan 19

Landslagsgreining og h\u00f6nnun - sm\u00e1stundars\u00fdning \u00ed Gestastofu Elli\u00f0a\u00e1rst\u00f6\u00f0var
Mon, 18 Aug at 08:30 am Landslagsgreining og hönnun - smástundarsýning í Gestastofu Elliðaárstöðvar

Rafstöðvarvegur 6, 110 Reykjavík, Iceland

K\u00fament\u00ednsla \/ Caraway harvesting
Mon, 18 Aug at 06:00 pm Kúmentínsla / Caraway harvesting

Viðey / Videy Island

Yoga at Andr\u00fdmi
Mon, 18 Aug at 06:30 pm Yoga at Andrými

Bergþórugata 20, 101 Reykjavík, Iceland

\u2728 Stand Up + Sliders - 18 Aug at Brixton
Mon, 18 Aug at 09:00 pm ✨ Stand Up + Sliders - 18 Aug at Brixton

Tryggvagata 20, Reykjavík, Iceland

Hannyr\u00f0astundir \u00ed \u00dalfars\u00e1rdal \/\/ Handicraft Times in \u00dalfars\u00e1rdalur
Tue, 19 Aug at 01:00 pm Hannyrðastundir í Úlfarsárdal // Handicraft Times in Úlfarsárdalur

Borgarbókasafnið Úlfarsárdal

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events