Líkaminn man - EMDR og TRE - Helgarnámskeið - Reykjavik

Sat, 29 Mar, 2025 at 09:00 am UTC+00:00

Heillandi hugur - Fræðslu og heilsusetur | Kopavogur

Svava Brooks, Trauma Recovery Coach
Publisher/HostSvava Brooks, Trauma Recovery Coach
L\u00edkaminn man - EMDR og TRE - Helgarn\u00e1mskei\u00f0 - Reykjavik
Advertisement
Á þessu gagnvirka námskeiði fær þátttakandinn tækifæri til að vinna með og auka við eigin þekkingu og færni fyrir eigin heilsu. Afleiðingar áfalla og streituvaldar eru meðal viðfangsefna okkar í námskeiðinu auk margs annars sem getur leitt til betri heilsu og bættra lífsgæða.
Líkaminn geymir allt.
Fólk sem hefur orðið fyrir áföllum finnur fyrir langvarandi óöryggi í líkama sínum – fortíðin lifir í formi óþæginda, verkja, kvíða. Líkami þeirra verður stöðugt fyrir innri viðvörunarmerkjum, oft óútskýranleg. Til að reyna að stjórna þessum ferlum læra þau oft að hunsa tilfinningar sínar og deyfa meðvitundina um það, sem er að gerast innra með þeim. Þau læra að fela sig fyrir sjálfum sér.
-Bessel Van Der Kolk.
Verð:
65.000 kr
Hægt er að skipta greiðslum
Dagskrá:
Laugardagur 29. mars kl. 9.00 - 17.00
Sunnudagur 30. mars kl. 9.00 - 16.00
Staðsetning.
Heillandi Hugur Heilsusetur
Hlíðarsmára 14,
Kópavogi
Nánari upplýsingar og skráning. https://www.emdrsetrid.is/emdr-hopmedfer-og-tre
Boðið er upp á stutt spjall ef þú hefur áhuga en vilt nánari upplýsingar um hvort að þetta námskeið henti þér. Hafðu samband við Svövu [email protected]
Um helgina er rifjað upp hvernig streita hefur áhrif á líkamann. Farið er yfir viðbrögð taugakerfisins við streitu og áföllum. Einnig er farið í EMDR hópmeðferð fyrir úrvinnslu áfalla, TRE fyrir spennulosun á streitu og til að ná djúpri slökun fyrir líkama og taugakerfi.
Tilgangur námskeiðisins er bæði uppbygging og styrking einstaklinga fyrir úrvinnslu áfalla. Einnig aukum við þolmörk líkamans fyrir betra tilfinningalegt jafnvægi. Loks lærum við að tengja betur saman huga og líkama. Það bætir færni okkar við að takast á við streitu og almenna vanlíðan.
EMDR hópameðferð er frábrugðin hefðbundinni hópameðferð að því leyti að þátttakendur vinna sjálfstætt og ræða ekki áfallasögu sína við aðra. EMDR hópameðferð krefst ekki að aðilar í hópnum séu að vinna með sama vanda. Þannig forðast einstaklingar hvers kyns aukakveikjur, komast framhjá mögulegum félagslegum kvíða sem tengist því að tala í hópi og hagnast af þeim jákvæða ávinningi sem sameiginleg hópaupplifun getur verið (Yalom, 1970).
TRE® (Tension, Stress & Trauma Release) er leið til að hjálpa líkamanum að losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum líkamans. Leiðin er þróuð af Dr. David Berceli PhD til að virkja náttúruleg viðbrögð líkamans á öruggan hátt með því að leyfa líkamanum að skjálfa eða titra til að losa um vöðvaspennu og róa taugakerfið. Með því að virkja þessi náttúrulegu viðbrögð líkamans í öruggu umhverfu, er verið að hvetja líkamann til þess að endurheimta jafnvægi sitt og ná slökun eftir langvarandi streitu.

Leiðbeinendur á þessu námskeiði eru Sigríður Björnsdóttir sálfræðingur og Svava Brooks, TRE leiðbeinandi.
Sigríður hefur starfað á einkareknum sálfræðistofum frá útskrift M.Sc í sálfræði frá HR 2018. Hún er í reglulegri handleiðslu bæði hjá íslenskum og erlendum handleiðurum og tekur markvisst þátt í þjálfun og endurmenntun á EMDR meðferðarforminu og mikilvægri sérhæfingu því tengdu.Hún sérhæfir sig í úrlausn áfalla, bæði flókinna áfalla og vegna áfallastreituröskunar auk almennrar sálfræðiþjónstu. Nánari upplýsingar um Sigríði og EMDRsetrinu hér. https://www.emdrsetrid.is/
Svava hefur unnið með TRE ráðgjöf síðan 2017. Svava hefur unnið með sjálfshjálparhópa á vegum einkafyrirtækja, stofnana og grasrótarsamtaka síðastliðinn 9 ár, við forvarnir gegn kynferðisofbeldi síðastliðinn 15. ár. Svava býður upp á fræðslu og námskeið um áhrif streitu og áföll á heilsu og líðan, fyrir fyrirtæki og stofnannir. Svava tekur reglulega þátt í þjálfun í TRE, vinnur sem TRE mentor og síðast hefur setið námskeið til að kenna börnum TRE. Hægt er að fræðast meira um Svövu og TRE á heimasíðu hennar: svavabrooks.com/tre
Líkaminn man, helgarnámskeið i EMDR meðferð og TRE aðferðin.
Meðferð og sjálfstyrking sem felur í sér EMDR meðferð, sjálfstyrkingu og streitu og spennu losun vegna vegna áfalla, verkja eða kulnunar.
EMDR meðferð er heildstæð sálfræðileg meðferð til að vinna úr afleiðingum áfalla og streitu.
Sigríður Björnsdóttir, EMDR meðferðaraðili er M.Sc. sálfræðingur og vottaður EMDR meðferðaraðili og EMDR handleiðari. Sérhæfð í úrlausn áfalla og streitu.
TRE er líkamsmiðuð aðferð til að losa úr líkamanum, spennu, streitu og verki.
Svava B Svanhildardóttir, TRE leiðbeinandi er vottaður leiðbeinandi og sérhæfir sig í líkamsmiðaðri nálgun.
Þátttakendur öðlast færni í streitustjórnun, finna fyrir meiri orku og betra jafnvægi.
Umsögn um námskeiðið:
"Mjög gott og gagnlegt námskeið. Farið yfir mikið efni en öllu gefið góður tími sem passaði vel. Kennarar mjög gefandi og hlýir. Skilaði sér vel hversu mjög þeir brenna fyrir því að gefa af sér og umvefja nemendur sína."
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Heillandi hugur - Fræðslu og heilsusetur, Kopavogur, Iceland

Sharing is Caring:

More Events in Kopavogur

Lj\u00f3sabor\u00f0 og segulkubbar
Sat, 29 Mar, 2025 at 11:00 am Ljósaborð og segulkubbar

Garðatorg 7, 210 Garðabær, Iceland

\u00cd draumheimum | Ragnhei\u00f0ur Ingunn og Eva \u00deyri | T\u00edbr\u00e1
Sun, 30 Mar, 2025 at 01:30 pm Í draumheimum | Ragnheiður Ingunn og Eva Þyri | Tíbrá

Salurinn Tónlistarhús

Br\u00f3der\u00edkl\u00fabburinn \u00e1 Lindasafni
Mon, 31 Mar, 2025 at 02:00 pm Bróderíklúbburinn á Lindasafni

Núpalind 7, 201 Kópavogsbær, Ísland

Haltu m\u00e9r \u2013 slepptu m\u00e9r | T\u00f6lvuleikir og t\u00f6lvuleikjanotkun ungmenna
Tue, 01 Apr, 2025 at 08:00 pm Haltu mér – slepptu mér | Tölvuleikir og tölvuleikjanotkun ungmenna

Hamraborg 6a, 200 Kópavogur, Iceland

Leslyndi me\u00f0 J\u00f3ni Kalman Stef\u00e1nssyni
Wed, 02 Apr, 2025 at 12:15 pm Leslyndi með Jóni Kalman Stefánssyni

Bókasafn Kópavogs

T\u00f3nlistarn\u00e6ring me\u00f0 Guju Sandholt og Matthildi \u00d6nnu
Wed, 02 Apr, 2025 at 12:15 pm Tónlistarnæring með Guju Sandholt og Matthildi Önnu

Tónlistarskóli Garðabæjar

Kopavogur is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Kopavogur Events