Advertisement
Ferðin er orðin full en sjálfsagt að skrá sig á biðlista.25.–28. júní 2026
Fararstjórn: Ásdís Skúladóttir og Birna Guðrún Baldursdóttir
Gangan hefst í Borgarfirði eystri fimmtudaginn 25. júní kl. 10 og lýkur á Seyðisfirði síðdegis 28. júní. Þeir sem vilja skilja bíla eftir á Seyðisfirði geta fengið far yfir í Borgarfjörð að morgni 25. júní. Aðrir hittast í Bakkagerði, Borgarfirði. Ferðin er trússuð, þannig að þátttakendur bera aðeins léttan dagspoka meðan á göngu stendur.
Göngusvæðið Víknaslóðir nær frá Borgarfirði eystri yfir til Loðmundarfjarðar. Svæðið er einstakt fyrir stórbrotna náttúrufegurð þar sem víkur, firðir, líparítfjöll og tignarleg fjallasýn mynda ógleymanlegt landslag. Gönguleiðirnar eru fjölbreyttar og friðsælar og þangað liggur leiðin í nærandi og skemmtilega kvennaferð með trússi.
Ferðin sameinar útivist og sjálfsrækt. Á dagskránni eru gönguferðir, hugleiðslur, léttar jógaæfingar, sjálfsþekkingarleikir, köld böð og sameiginlegir morgun- og kvöldverðir. Mikilvægt er að mæta verkefnum ferðarinnar með opnum og jákvæðum huga og njóta ferðalagsins til fulls.
Gist verður þrjár nætur í skálum Ferðafélags Fljótsdalshéraðs á Víknaslóðum; í Breiðuvík, Húsavík og Loðmundarfirði, þar sem aðstaða er frábær.
Nánari upplýsingar og skráning er á heimasíðu FFA, ffa.is.
ATH. ekki er nóg að merkja við hér á facebook.
Advertisement
Event Venue
Strandgata 23, 600 Akureyri, Iceland, Strandgata 23, 600 Akureyrarbær, Ísland, Akureyri, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.





