Advertisement
12.–15. júlí 2026Brottför kl. 8 með rútu frá FFA, Strandgötu 23
Fararstjórn: Selma S. Malmquist
Ekið með rútu í Herðubreiðarlindir. Gist er í skálum FFA við Bræðrafell og Drekagil. Bera þarf allan farangur og því mikilvægt að huga að því sem tekið er með. Svæðið sem farið er um státar af sérkennilegum og fallegum hraunmyndunum, auðn, litadýrð og ekki síst mikilli kyrrð.
Nálægðin við Herðubreið hefur líka sín áhrif.
Dagskrá ferðarinnar:
1.d., sunnudagur: Herðubreiðarlindir – Bræðrafell
Ekið í Herðubreiðarlindir. Eftir kaffi er gengið um greiðfært hraun í Bræðrafell og gist þar. Taka þarf með vatn til dagsins
Vegalengd: 19 km.
2.d., mánudagur: Bræðrafell
Gengið á Kollóttudyngju og Bræðrafell skoðað. Gist í Bræðrafellsskála aðra nótt
Vegalengd: 8–12 km.
3.d., þriðjudagur: Bræðrafell – Dreki
Gengið frá Bræðrafelli í Drekagil. Gist í skála FFA við Drekagil
Vegalengd: 21–22 km. Gönguhækkun: Engin
4. d., miðvikudagur: Dreki – Askja
Gengið frá Drekagili yfir Dyngjufjöll að Öskju. Ekið heim um kvöldið
Vegalengd: 10–11 km. Gönguhækkun: 650 m.
Hámarksfjöldi 15 manns.
Nánari upplýsingar um ferðina og skráning er á heimasíðu FFA, ffa.is. ATH ekki er nóg að merkja við hér á facebook, það þarf að skrá sig í gegnum heimasíðu FFA.
Advertisement
Event Venue
Strandgata 23, 600 Akureyri, Iceland, Strandgata 23, 600 Akureyrarbær, Ísland, Akureyri, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






