Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með vordagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 16. apríl kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram kvartett píanóleikarans Helgu Laufeyjar. Helga Laufey, Jóns Óskar sem leikur á trommur og bassaleikarinn Guðjóns hefur starfað saman sem tríó um nokkra hríð og mun á tónleikunum fá til liðs við sig öflugan liðsmann á trompet, Birki Frey Matthíasson. Efnisskráin er fjölbreytt og má þar heyra lög eftir meistara á borð við Duke Ellington, Cedar Walton, Hoagy Carmichael, Jack DeJohnette og Joe Henderson en einnig nýrri jazz úr smiðju Javier Girotto og Scott Colley. Að auki mun kvartettinn leika af fingrum fram seiðandi afrísk stef , gömul þjóðlög og glænýja frumsamda tónlist. Helga Laufey Quartet
The trio of Helga Laufey, Jón Óskar and Guðjón has been working together for some time and will be joined at the concert by an expressive jazz trumpet player, Birkir Freyr Matthíasson. The repertoire is varied and one can hear songs by masters such as Duke Ellington, Cedar Walton, Hoagy Carmichael, Jack DeJohnette and Joe Henderson, but also more current jazz music by Javier Girotto and Scott Colley. In addition the quartet will play soulful African themes, old folk songs and brand new original music.
Birkir Freyr Matthíasson, trumpet
Helga Laufey Finnbogadóttir, piano
Guðjón Steinar Þorláksson, bass
Jón Óskar Jónsson, drums
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 4500.
Spennandi vordagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í miðjan maí. Múlinn er að hefja sitt 28. starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 4500 og 3300 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets