Advertisement
Kaffispjall Félag fósturforeldra fer fram fyrsta þriðjudagskvöld hvers mánaðar!Í þetta sinn munum við fá Ödu Björnsdóttur sem er nýútskrifuð úr meistaranámið til starfsréttinda í félagsráðgjöf til að lýta við og kynna niðurstöður rannsóknar sinnar á fósturrofi. Ada rannsakaði meðal annars upplifun fósturforeldra af fósturrofi og hvað þeim þætti betur mega fara þegar sú staða kom upp. Við rannsókn sína naut Ada liðsinnis Félags fósturforeldra við að afla viðmælenda.
Kvöldið hefst því á opnu spjalli en svo mun kynning Ödu hefjast klukkan 20:00 að henni lokinni verður í boði að koma með spurningar og umræða um viðfangsefnið. Að kynningu lokinni verður aftur opið spjall milli fósturforeldra.
Mögulegt verður að fygljast með kynningu Ödu í gegnum fjarfundarbúnað fyrir þau sem koma utan að landi og verður fjarfundarhlekkur auglýstur í lokuðu samfélagi fósturforeldra og sendur félagsfólki utan að landi.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Sigtún 42, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Sigtún 42, 105 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland