John Grant í Eldborg

Sat, 13 Jun, 2026 at 08:00 pm UTC+00:00

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2 | Reykjavík

Listah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Reykjav\u00edk \/ Reykjavik  Arts Festival
Publisher/HostListahátíð í Reykjavík / Reykjavik Arts Festival
John Grant \u00ed Eldborg
Advertisement
John Grant á Listahátíð í Reykjavík 2026 – tónleikar í Eldborg 13. júní
Listahátíð í Reykjavík kynnir með stolti tónleika með John Grant í Eldborg í Hörpu laugardaginn 13. júní. Þetta eru fyrstu stórtónleikar hans hér á landi í langan tíma og því um einstakan viðburð að ræða.
John Grant hefur um árabil verið búsettur á Íslandi og gegnt áberandi hlutverki í innlendu og alþjóðlegu tónlistarlífi, bæði sem lagahöfundur og flytjandi. Ferill hans spannar yfir tvo áratugi og einkennist af fjölbreyttri notkun tónlistarstíla, mikilli einlægni og beittum húmor. Áhrifamiklir textar hans hafa snert áheyrendur um heim allan en John er þekktur fyrir að fjalla um eigin lífsreynslu á heiðarlegan og hispurslausan hátt. Plötur hans hafa hlotið lof gagnrýnenda og skipað honum sess á meðal eftirtektarverðustu listamanna samtímans.
Á tónleikunum í Eldborg mun John flytja úrval laga frá ferli sínum, þar á meðal lög af nýjustu plötu hans, The Art of the Lie. Platan kom út árið 2024 og hlaut frábæra dóma gagnrýnenda.
John Grant er þekktur fyrir einstaka rödd og sterka nærveru á sviði. Hann myndar náin tengsl við áhorfendur með kraftmiklum en einlægum tónlistarflutningi sem gera hverja tónleika að ógleymanlegri upplifun.
John á í einstöku sambandi við Ísland og hefur unnið með fjölmörgu listafólki búsettu hér á landi. Við hlökkum til að dýpka tengslin við John enn frekar þegar hann kemur fram á Listahátíð í Reykjavík ásamt hljómsveit sinni sem skipuð er úrvals hljóðfæraleikurum.
Tónlistarkonan RAKEL mun hita upp fyrir John Grant en hún hefur á undanförnum árum skapað sér sérstöðu í íslenskri tónlistarsenu með einstökum hljóm sínum og marglaga tónsmíðum. Ásamt því að semja sína eigin tónlist hefur hún átt í samstarfi við margt af fremsta tónlistarfólki landsins síðustu ár.
🎟 Miðasala hefst 2. febrúar – tryggðu þér sæti tímanlega!
_______
John Grant at Reykjavík Arts Festival 2026 – Concert in Eldborg on June 13
Reykjavík Arts Festival proudly presents a concert with musician John Grant in Harpa’s Eldborg on Saturday, June 13. This will be John’s first major concert in Iceland in many years, making it a truly special occasion.
John Grant has been based in Iceland for many years. He has played a prominent role in the national and international music scene, both as a songwriter and performer, with a career spanning over two decades. He is a multifaceted artist whose music spans several genres and is marked by deep sincerity and sharp wit. John’s powerful lyrics have resonated with audiences worldwide; he is known for writing about his own personal life experiences in an honest and unflinching way. His albums have received widespread critical acclaim, placing him among the most distinctive artists of his generation.
At his concert in Eldborg, John will perform a selection of songs from across his career, including tracks from his latest album, The Art of the Lie. The album was released in 2024 and received outstanding reviews from critics.
John Grant is known for his unique voice and strong stage presence. Through powerful yet intimate performances, he connects deeply with the audience, making every concert an unforgettable experience.
John has a special connection with Iceland and has collaborated with numerous artists based in the country. We look forward to deepening this connection when he performs at Reykjavík Arts Festival together with his band of outstanding musicians.
The Icelandic singer-songwriter RAKEL will open for John Grant. In recent years, she has gained recognition in the Icelandic music scene with her unique voice and layered compositions. In addition to writing her own music, she has collaborated with some of the country’s leading musicians.
🎟 Ticket sales begin on February 2 – secure your seat early!
Advertisement

Event Venue

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Nowhere \u00e1 Listah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Reykjav\u00edk
Fri, 12 Jun at 08:00 pm Nowhere á Listahátíð í Reykjavík

Tjarnarbíó (Reykjavík, Iceland)

Lestin \u00ed lifandi flutningi
Fri, 12 Jun at 08:00 pm Lestin í lifandi flutningi

IÐNÓ

Singin' in the Rain - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 12 Jun at 09:00 pm Singin' in the Rain - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Heimst\u00f3nlistarh\u00e1t\u00ed\u00f0 fj\u00f6lskyldunnar \u00ed H\u00f6rpu \/\/ The Family World Music Festival at Harpa
Sat, 13 Jun at 11:00 am Heimstónlistarhátíð fjölskyldunnar í Hörpu // The Family World Music Festival at Harpa

Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland

Batamatur
Sat, 13 Jun at 12:00 pm Batamatur

IÐNÓ

John Grant in Reykjav\u00edkurborg
Sat, 13 Jun at 07:00 pm John Grant in Reykjavíkurborg

Harpa Concert Hall and Conference Centre

Angel Blue \u00e1 Listah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Reykjav\u00edk
Sun, 14 Jun at 05:00 pm Angel Blue á Listahátíð í Reykjavík

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

SummmerSwing 2026 Bj\u00f6ssi Sax og vinir
Sun, 14 Jun at 07:00 pm SummmerSwing 2026 Bjössi Sax og vinir

Austurbæjarbíó

Lokapart\u00fd Listah\u00e1t\u00ed\u00f0ar
Sun, 14 Jun at 08:00 pm Lokapartý Listahátíðar

IÐNÓ

Sumarhj\u00f3lan\u00e1mskei\u00f0 fyrir b\u00f6rn 7-12 \u00e1ra - 2026
Mon, 15 Jun at 09:00 am Sumarhjólanámskeið fyrir börn 7-12 ára - 2026

Öskjuhlíð

Myndlistarn\u00e1mskei\u00f0 fyrir 7-9 \u00e1ra og 10-12 \u00e1ra \ud83c\udfa8  \/ SUMAR 2026 \ud83c\udf1e
Mon, 15 Jun at 04:00 pm Myndlistarnámskeið fyrir 7-9 ára og 10-12 ára 🎨 / SUMAR 2026 🌞

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland

\u00derusu \u00feri\u00f0judagur
Tue, 16 Jun at 06:30 pm Þrusu þriðjudagur

Olís (Norðlingaholt 7, Reykjavík, Iceland)

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events