Advertisement
Codapent - gnocchismiðja Þátttakendur búa til kartöflugnocchi frá grunni og snæða undir hug- og handleiðslu listamannanna. Verkið fer fram á mörkum matreiðslu og sjálfshjálparnámskeiðs. Hver og einn þátttakandi velur sínar kartöflur af kostgæfni og skapar gnocchi með eigin nefi og hjarta. Fólk er leitt inn á við, í gegnum hug og hönd, og boðið að tengjast ákveðnum parti af sjálfu sér til að framkalla og móta í form úr deiginu sínu. Gnocchi-formin eru loks elduð og snædd. Þetta er líkamleg og andleg athöfn. Augnablik í stóra samhenginu. Augnablik til að innbyrða. Hverfult. Það sem vill gerast fær að gerast. Það sem þú finnur fær að finnast. Og finna sitt form.
Listafólk: Hrefna Lind Lárusdóttir, Huginn Þór Arason, Guðný Hrund Sigurðardóttir & fleiri.
Komið og farið að vild
Fjölskylduvænn viðburður
Viðburðurinn er partur af dagskrá Klúbbs Listahátíðar í Reykjavík. Þar eru allir viðburðir ókeypis og öll velkomin. Klúbbur Listahátíðar í Reykjavík er í Iðnó og er opinn alla daga fram á kvöld 30. maí - 14. jún.
/
Codapent - gnocchi workshop
Participants make potato gnocchi from scratch and eat under the guidance of the artists. The work lies on the border between cooking and a self-help class. Each participant carefully selects their potatoes and creates their gnocchi with their intuition and heart. People are led inward, through mind and hand, and invited to connect with a part of themselves that they then develop and shape their dough into. The gnocchi shapes are finally cooked and eaten. This is a physical and spiritual act. A moment in the grand scheme of things. A moment to absorb. Fleeting. Whatever wants to happen can happen. Whatever you feel can be felt. And can find its form.
Artists: Hrefna Lind Lárusdóttir, Huginn Þór Arason, Guðný Hrund Sigurðardóttir & more.
Come and go as you wish
Family friendly event
The event is part of the Festival Hub programme at the Reykjavík Arts Festival. All events are free of charge, and everyone is welcome. The Festival Hub takes place at Iðnó and is open daily from 30 May to 14 June, until the evening.
Advertisement
Event Venue
IÐNÓ, Vonarstræti 3,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.









