Advertisement
Jólabókaflóðið byrjar á Borgarbóksafninu í Kringlunni á degi íslenskrar tungu með upplestri fjögurra höfunda. Eva Rún Snorradóttir, Eva Björg Ægisdóttir, Hallgrímur Helgason og Nanna Rögnvaldardóttir lesa úr brakandi nýjum bókum sínum á ástkæra ylhýra.Eva Rún Snorradóttir gefur út sína fyrstu skáldsögu, Eldri konur, en hún hefur áður gefið út smásögur og ljóð og hlaut Maístjörnuna fyrir Fræ sem frjóvga myrkrið árið 2019. Eva Björg Ægisdóttir hefur slegið í gegn með glæpasögum sínum sem gerast á Akranesi og nýjasta viðbótin er Kvöldið sem hún hvarf, en hún hlaut blóðdropann fyrir síðustu bók sína, Heim fyrir myrkur. Hallgrímur Helgason er þrefaldur handhafi bókmenntaverðlauna Íslands, þar á meðal fyrir Sextíu kíló af sólskini og Sextíu kíló af kjaftshöggum árið 2018 og 2021 og nú er síðasta bókin í þeim þríleik á leiðinni, Sextíu kíló af sunnudögum. Nanna Rögnvaldardóttir er þjóðþekkt fyrir matreiðslubækur sínar og fyrsta skáldsaga hennar Valskan vakti mikla lukku í fyrra. Nú fylgir hún henni eftir með annarri sögulegri skáldsögu, Þegar sannleikurinn sefur.
Öll velkomin.
Heimasíða viðburðar:: https://borgarbokasafn.is/vidburdir/bokmenntir/jolabokaffi
Nánari upplýsingar veitir:
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
[email protected] | s. 411 6204
Hólmfríður María Bjarnardóttir, sérfræðingur
[email protected] | s. 411 6202
---
On the Icelandic language day four authors will read from their new books in Icelandic: Eva Rún Snorradóttir, Eva Björg Ægisdóttir, Hallgrímur Helgason, and Nanna Rögnvaldardóttir.
Eva Rún Snorradóttir has published poetry and short stories and her first novel, Eldri konur is now out. Eva Björg Ægisdóttir‘s crime novels have been a smash hit and her newest one is Kvöldið sem hún hvarf. Hallgrímur Helgason has won the Icelandic Literary Prize multiple times, including twice for the prequels to his latest novel Sextíu kíló af sunnudögum. Nanna Rögnvaldardóttir has written numerous recipe books but her second historical novel is Þegar sannleikurinn sefur.
Everyone is welcome but the readings will be in Icelandic.
The event's website:
https://borgarbokasafn.is/en/event/literature/book-reading-icelandic-language-day
Further information:
Guttormur Þorsteinsson, specialist
[email protected] | tel. 411 6204
Hólmfríður María Bjarnardóttir, specialist
[email protected] | tel. 411 6202
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Borgarbókasafnið Kringlunni, Kringlan 1, 103 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland